Leifur Garðarsson kom í kvöld sínum mönnum annað árið í röð í undanúrslitin bikarsins. Hans menn sigruðu 1.deildarlið Hauka á Ásvöllum í kvöld 1-0 í framlengdum leik.
Aðspurður hvort að Haukarnir hafi komið Leifi eitthvað á óvart hafði hann þetta að segja:
,,Nei, ég bý hérna rétt hjá og er búinn að sjá nokkra leiki með Haukum í sumar og Haukar eru með flott lið, með marga skemmtilega stráka meiri segja voru á bekknum strákar sem hafa staðið sig flott í deildinni að mínu mati og þetta er greinilega stór hópur en mér fannst við í heildina vera sterkara liðið."
,,Við lentum kannski í smá vandræðum í byrjun og fengum við nokkrum sinnum boltann yfir okkur í vörninni en í síðari hálfleik fannst mér við stjórna leiknum algjörlega, við náðum að halda boltanum og spila honum á jörðinni og héldum því áfram í framlengingunni og ég held að sigurinn hafi verið sanngjarn þrátt fyrir að Denis (Curic) hafi klikkað nokkrum góðum færum í fyrri hálfleik," sagði Leifur.
Eins og hann segir, klikkaði Denis Curic nokkrum mjög góðum færum, en Fjalar varði oft á köflum frábærlega og hélt Fylkisliðinu uppi í fyrri hálfleik, en Leifur þakkar gervigrasinu einnig.
,,Hann komst inn fyrir en við náðum reyndar alltaf að trufla hann og það sýnir kannski gallann á gervigrasi því hann var í vandræðum með að fóta sig og held ég að á venjulegu grasi hefði hann örugglega verið komin lengra frá vörninni þannig við náðum yfirleitt að komast fyrir skotin, en við erum auðvitað með besta markmann landsins og hann er vissulega í markinu til að verja skotin."
Gervigras er afar umdeilt og því var ekki í vegi að spyrja Leif hvort hann hafi ekki bara verið ánægður að spila leikinn á gervigrasi í kvöld.
,,Ég veit það nú ekki, ég vill nú frekar spila þetta við "eðlilegar" aðstæður frekar en á gervigrasi við erum auðvitað vanir því, en það hefði ekki verið nein afsökun að detta hér út og kenna vellinum um, það er af og frá, við erum að æfa á þessu yfir vetratímann og eigum einn svona góðan völl sjálfir," sagði Leifur en hann á enga óskamótherja í undanúrslitunum.
,,Nei, það er bara gaman að fara á Laugardalsvöllinn annað árið í röð og vonandi höfum við dur og þor til að stíga einu skrefi lengra en í fyrra," sagði Leifur að lokum.



