Andri Marteinsson var að vonum ekki ánægður með tapið í kvöld en samt sem áður ánægður með sína menn í leiknum. En hans menn biðu lægri hlut gegn Landsbankadeildarliði Fylkis 0-1 í 8-liða úrslitum Visa bikarsins.
Við spurðum Andra einfaldlega fyrst hvort þetta væri ekki súrt? ,,Jú, en maður er samt sáttur þrátt fyrir að vera súr. Liðið var að spila vel og þegar liðið er að spila vel og eru ekki að uppskera eftir því þá getur maður ekki verið súr yfir liðinu. En yfir úrslitunum er maður jú frekar súr," sagði Andri.
En miðað við öll færin sem Haukar fengu til að mynda í fyrri hálfleiknum og með nýtingu í lagi hefðu þeir hæglega getað gert útum leikinn í fyrri hálfleik, er Andri þá ekki enn svekktari fyrir vikið?
,,Tvö eða þrjú , núll yfir í hálfleik það hefði svosem gefið ágæta mynd af leiknum miðað við hvernig hann var að spilast. Seinni hálfleikurinn líka þá var líka jafnræði og ekkert að gerast. Auðvitað hefði leikurinn þróast allt öðruvísi hefði mark komið fyrr en maður veit auðvitað ekkert svona eftir á, en allavegana þá hefði ég viljað sjá eitt til tvö mörk í kvöld hjá okkur."
,,Ég var búinn að afla mér upplýsingar um liðið og það var í rauninni ekkert sem kom mér á óvart miðað við þær upplýsingar sem ég fékk og það sem ég var búinn að sjá til Fylkisliðsins," sagði Andri aðspurður hvort að Fylkisliðið hefði komið honum eitthvað á óvart í kvöld.
,,Í rauninni var það kannski helsta hvað okkur gekk vel að mæta þeim með þeirri leiktaktík sem þeir voru að leika og hve við vorum sterkir maður á mann. Mér fannst þetta eiginlega ganga betur í dag en ég þorði að vona, þó svo að úrslitin hafi ekki endurspeglað það."
Haukar sigruðu HK í síðustu umferð í bikarnum 1-0 og töpuðu nú naumlega gegn Fylki.
,,Bikarinn er sér keppni og í keppninni eru stóru liðið að mæta litlu liðunum og ég held að á sama skapi þá mótiverumst við í þessa leiki og þá eru hinir kannski með vanmat í gangi. En ég held samt að við höfum ekki verið að spila bikarleikina eitthvað betur heldur en marga leiki í deildinni, þannig að stemmingin í bikarleikjunum endurspeglast bara það sem er að gerast í deildinni."
,,Það mætti kannski segja það að þegar öllu er á botni hvolft þá hefði vanmat þessara tveggja liða (HK og Fylkis) átt þátt í þessu og klárlega lítið sjálfstraust vegna slaks gengis í deildinni. Ég held að þarna séu tveir þættir sem spila inn í, svo ég ætla ekki að leggja mat á það hvort að við séum svona sterkir eða þeir svona slakir, ég held að það sé ekki sanngjarnt," sagði Andri
Nú hafa Haukar tapað tveimur leikjum í röð, fyrst gegn Víking Ólafsvík í deildinni og nú gegn Fylki í bikarnum. Andri er samt sem áður ekkert orðin stressaður á því að sitt lið sé eitthvað að fara gefa eftir.
,,Við vorum að spila vel í kvöld og ég er mjög sáttur með liðið og sáttur með frammistöðuna og ég vænti þess að við munum halda sama tempoi í næsta leik sem er á sunnudaginn. Mitt starf er að halda mínum mönnum við efnið og stappa stálinu í menn," sagði Andri en hans menn mæta Fjarðabyggð á heimavelli á sunnudaginn.



