Grétar Sigfinnur Sigurðarson var sáttur eftir 3-2 sigur KR á Grindavík í bikarnum í kvöld og sagði eftir leikinn að KR hafi skuldað Grindavík að vinna þá.
,,Svona bikarleikir þróast oftast í smá sóknarbolta og sérstaklega þegar allt er undir eins og sérstaklega í seinni hálfleik. Það sem þeir hafa sýnt í síðustu tveimur leikjum er allt annað en ég bjóst við en þetta hafðist. Við tókum þá ákvörðun í fyrsta bikarleiknum að við ætluðum að klára hvert einasta færi og klára okkar leiki. það er takmarkið að klára þetta."
Grindavík lagði KR 2-1 á Grindavíkurvelli á mánudagskvöld en nú snerist dæmið við og KR vann 3-2 heimasigur.
,,Við skulduðum þeim þetta aldeilis, þeir skoruðu tvö miður skemmtileg mörk í síðasta leik og við ætluðum ekki að láta það gerast aftur. Við sóttum vel í dag en varnarleikurinn var ekki alveg upp á sitt besta. Það var eitthvað sem gerðist þarna, það er eitthvað sem gerist bara í bikarleikjum, það er svona smá óvænt."
Stefán Logi Magnússon markvörður KR varði víti í stöðunni 3-2. Grétar var sáttur við hann.
,,Hann var frábær, sérstaklega í vítinu, þetta var frábært víti og hann varði það. Þetta er ótrúlegt. Við erum með tvo klassa markmenn og það skiptir engu hver er í marki. En Stefán Logi var frábær."



