Rashford verður ekki hjá Barcelona á næsta tímabili - Man Utd kemur mikið við sögu í slúðurpakka dagsins
   mán 28. júlí 2008 10:09
Magnús Már Einarsson
Bjarni Guðjónsson: Var ekki í mínum höndum
Logi Ólafsson þjálfari KR og Bjarni Guðjónsson.
Logi Ólafsson þjálfari KR og Bjarni Guðjónsson.
Mynd: Heimasíða KR
Bjarni gengur af velli eftir leikinn gegn FH í kvöld.
Bjarni gengur af velli eftir leikinn gegn FH í kvöld.
Mynd: Fótbolti.net - Gísli Baldur
Mynd: Fótbolti.net - Gísli Baldur
Bjarni Guðjónsson gerði í gærkvöldi fjögurra og hálfs árs samning við KR en hann kemur til liðsins frá ÍA. Bjarni segir að það hafi verið erfitt að yfirgefa Skagamenn.

,,Auðvitað er það mjög erfitt en það fór ákveðinn atburðarrás í gang sem varð þess valdandi að það var í raun og veru ekki í mínum höndum hvað myndi gerast og eftir það var mjög þægilegt að geta gengið að samningaborðinu við KR-inga," sagði Bjarni þegar að Fótbolti.net náði tali af honum seint í gærkvöldi.

,,Það er ofboðslega lítið um atburðarrásina að segja. Þetta snýst ekki um að tvíburarnir séu orðnir þjálfarar. Ég óska þeim alls hins besta og vona að þeir nái að snúa gengi liðsins við," sagði Bjarni en hann segir erfitt að skilja við ÍA í þeirri stöðu sem liðið er í núna.

,,Það er mjög erfitt en þeir hafa alla burði í að snúa þessu. Það eru fínir leikmenn uppi á Skaga og þetta breytist líka þegar að tvíburarnir koma og spila. Vissulega er þetta mjög erfitt. Ég er Skagamaður að upplagi en svona er lífið í fótboltanum, maður veit ekki hvað maður fær og fyrst ég er kominn í KR þá er ég mjög ánægður með þá niðurstöðu."

Bjarni lék sinn síðasta leik með ÍA í gærvöldi en liðið beið þá lægri hlut gegn FH. Síðar í gærkvöldi var síðan gengið frá því að Bjarni myndi ganga til liðs við KR.

,,Að spila leikinn var allt í lagi. Það var "Buisness as usual" að fara í leikinn en þetta var dálítið skrýtið eftir leikinn þegar það var búið að ganga frá þessu. Þetta var ekkert öruggt fyrr en fljótlega eftir leikinn þegar að þau gengu frá sínum málum, KR og ÍA," sagði Bjarni sem lék vel í síðasta leik sínum með ÍA.

,,Ég hef alltaf reynt að gera mitt allra besta þegar ég hef spilað, sama hvar ég hef spilað og ekki síður uppi á Skaga. Ég hef verið í miklum meiðslum í sumar, þetta er einn af fyrstu leikjunum í sumar þar sem ég er algjörlega verkjalaus," sagði Bjarni en hann verður löglegur með KR fyrir leikinn gegn Fjölni á þriðjudaginn og gæti því tekið þátt í tveimur leikjum í þrettándu umferð Landsbankadeildarinnar.

Valur og FH sýndu Bjarna einnig áhuga en KR var alltaf fyrsti kosturinn. ,,Já, þegar að ljóst var að ég væri að fara af Akranesi þá var það fyrsti kosturinn minn."

,,Hin liðin eru bæði mjög góð og hafa staðið vel að sínum málum en ég bý í Vesturbænum og þá liggur beinast við að fara í KR. Þeir vildu gera við mig fjögurra og hálfs árs samning og það verður farið að síga á seinni hlutann þegar að sá samningur er búinn. Ég þekki líka ágætlega til í KR. Ég þekki Rúnar Kristinsson og svo eru hérna gamlir félagar úr fótboltanum í leikmannahópnum þannig að það lá bara beinast við."

,,Liðið er með frábæran þjálfara, góðan leikmannahóp og það er uppgangur í félaginu. Komnir í undanúrslit í bikarnum þannig að það er bara gríðarlega gaman að fá að koma inn í þennan hóp og fá að takast á við þau verkefni sem bíða þar."


Bjarni gerði eins og fyrr segir fjögurra og hálfs árs samning við KR en hann vonast tl að geta náð góðum árangri með félaginu á næstu árum.

,,Maður er í þessu til að ná árangri og KR er mjög stórt félag, það er ekki spurning. Félagið hefur verið að vinna vel í sínum málum og er með góðan leikmannahóp. Það er allt til alls hérna Vestur í bæ," sagði Bjarni Guðjónsson við Fótbolta.net í gærkvöldi.
Slapp
banner
banner
banner