Heimild: BBC
Harry Redknapp knattspyrnustjóri Tottenham hefur kallað markvörðinn Ben Alnwick til baka úr láni frá 1. deildarliði Carlisle United.
Alnwick sem er 21 árs lék sex leiki fyrir Carlisle á mánaðartíma þar á láni. Hann snýr nú aftur til Tottenham þar sem hann mun berjast við Heurelho Gomes og Cesar Sanchez um markmannsstöðuna.
Alnwick er leikmaður U21 árs landsliðs Englands sem Tottenham keypti frá Sunderland á 900 þúsund pund í janúar 2007. Hann á enn eftir að leika sinn fyrsta leik í treyju Tottenham.
Tottenham tilkynnti í gær að félagið hafi sagt skilið við Hans Leitert markmannsþjálfara en þrátt fyrir endurkomu Alnwick hefur Redknapp sagt að hann ætli að treysta á Gomes áfram þrátt fyrir nokkur mistök hans.



