WIlliam Gallas fyrirliði Arsenal segir leikmenn liðsins ekki vera nógu hugrakka til að berjast um titilinn í Englandi.
Arsenal tapaði 2-0 fyrir Aston Villa um síðustu helgi og hefur nú tapað fjórum sinnum á leiktíðinni.
,,Við erum ekki nógu hugrakkir til að berjast. Ég tel að við þurfum að vera hermenn. Til að vera meistari þaft þú að spila í stórleikjum um hverja helgi og berjast," sagði Gallas við AP.
,,Við erum að mæta liðum sem eru ekki hrædd við að spila fótbolta gegn okkur, þau eru ekki hrædd við að mæta okkur á okkar heimavelli og þetta er orðið hættulegt fyrir Arsenal."
,,Það voru vandræði í hálfleik í 4-4 leiknum við Tottenham. Það eina sem ég gat sagt í hálfleik var 'strákar, við munum greiða úr þessum vandamálum eftir leikinn, ekki í hálfleik."
Gallas, sem er 31 árs, hefur einnig greint frá því að ónafngreindur leikmaður í Arsenal hafi ráðist að sér og öðrum samherja í leik.
,,Ég sem fyrirliði hef fengið leikmenn upp að mér þar sem þeir eru að tala um aðra leikmenn..kvarta undan þeim. Í leik þá talar þú við þennan leikmann og leikmaðurinn sem um ræðir ræðst að okkur, það koma tímar þar sem að þú skilur ekki hvernig þetta getur gerst."
,,Ég er að reyna að verja sjálfan mig svolítið án þess að gefa upp nöfn. Annars þarf ég að taka allt (á mig). Ég er 31 árs, leikmaðurinn sem um ræðir er sex árum yngri en ég," sagði Gallas en hann telur að Arsenal geti ennþá barist um titla á þessari leiktíð.
,,Ég verð að vinna eitthvað á þessari leiktíð, Arsenal verður að vinna eitthvað. Það eru fjögur eða fimm ár síðan að Arsenal vann eitthvað - 2004. Það eru næstum fimm ár og það er ekki gott," sagði Gallas.



