Danski miðjumaðurinn Dennis Danry skrifaði í gær undir nýjan tveggja ára samning við Þrótt sem hann lék með í Landsbankadeildinni í sumar. Hjá Þrótti fær hann enn meira hlutverk en áður því hann mun koma að þjálfun hjá félagiu. Við ræddum við hann í gær og spurðum fyrst afhverju hann ákvað að vera áfram hér á landi þrátt fyrir kreppuna sem er í landinu.
,,Ég átti alltaf eitt ár eftir af samningnum mínum hérna en ég er bara svo ánægður hjá félaginu og hrifinn af Íslandi líka," sagði Danry í samtali við Fótbolta.net.
,,Ég og kærasta mín eigum líka von á barni, sem verður íslenskt barn. Helst af öllu sá ég að félagið er með góðar nýjar hugmyndir fyrir næstu tvær leiktíðir svo mér fannst góð hugmynd að vera áfram og framlengja samningi mínum við félagið. Það eru nýir hlutir í samningnum. Ég verð ekki bara leikmaður og mun taka þátt í öðru sem er spennandi að vera hluti af."
Sem fyrr sagði mun Danry koma að þjálfun hjá félaginu því hann hefur verið ráðin aðstoðarmaður Gunnars Oddssonar þjálfara liðsins þar til tímabilið byrjar en þá mun Þorsteinn Halldórsson koma aftur í það starf og Danry einbeitir sér að því að vera leikmaður.
,,Ég byrja á að vera aðstoðarþjálfari og hjálpa Gunna. Steini verður áfram aðstoðarþjálfari og kemur aftur þegar tímabilið byrjar. Ég mun helst af öllu halda áfram að spila fótbolta og vera fótboltamaður. Svo ætla ég að taka þjálfararéttindin, annaðhvort hjá knattspyrnusambandi Íslands eða Danmerkur. Ég er ekki búinn að ákveða það ennþá en býst við að það verði á Íslandi," sagði hann.
Hann mun nú þegar hefja störf við að setja á stofn Þróttarakademíuna þar sem unnið verður sérstaklega með unga afrekstmenn hjá félaginu.
,,Það verður mjög spennandi að taka þátt í því," sagði Danry en félagið gerði í gær þriggja ára samning við þrjá unga leikmenn en það var fyrsta skrefið í nýju akademíunni.
,,Byrjunin var að semja við þessa fimm leikmenn sem eru hluti af framtíð félagsins. Þetta byrjar svo allt núna, ég er að skipuleggja hvernig þetta fer fram og mun hefja að ræða við þjálfara leikmanna sem eru 14 ára og eldri. Þetta er eitthvað sem ég, Gunnar og þjálfarateymið munum sýna styrktaraðilunum og stuðningsmönnum að okkur er alvara og að Þróttarakademían muni búa til leikmenn fyrir aðalliðið."
,,Þetta verður alvara, þarna verða bestu leikmennirnir. Við ætlum að koma eins mörgum leikmönnum og mögulegt er í íslensku landsliðin, frá U16 ára og upp úr. Við erum með leikmenn í þessum liðum núna en viljum fjölga þeim og sú vinna hefst núna. Það mun taka langan tíma en verður gaman að taka þátt í því."
,,Það verða æfingar áður en strákarnir fara í skólann, við munum vinna þetta með skólunum sem þeir eru í. Svo verða æfingar seinnipartinn og svo æfa þeir með flokkunum sínum. Frá byrjun mun ég fylgjast með æfingum þeirra og út allt tímabilið og leikjum líka. Gunnar er aðalmaðurinn svo hann og Steini munu taka þátt í þessu líka. Þetta verður gert faglega."
Danry sem er þrítugur lék sitt fyrsta tímabil hér á landi í sumar og skoraði fjögur mörk í 19 leikjum fyrir félagið. Hann er ánægður með fyrsta árið.
,,Þetta hefur verið frábært. Árangurinn var góður því í fyrsta sinn í þrjátíu ár hélt félagið sæti sínu í efstu deild," sagði hann. ,,Það var frábært afrek fyrir félagið og frábært að taka þátt í því. Það er sérstakt hugarfar í þessu félagi og margir góðir leikmenn. Meira að segja úr unglingaliðunum. Ég átti líka frábært tímabil, átti frábæra leiki og var svo valinn leikmaður ársins hjá félaginu svo ég kvarta ekki. Þetta hefur verið gott ár fyrir mig og sérstaklega fyrir félagið."
Algengt er að erlendir leikmenn sem leika hér á landi fari til heimalands síns yfir veturinn og komi aftur þegar fer að vora og hefja æfingar með liði sínu. Danry gerði það ekki og lítur á Ísland sem heimili sitt í dag.
,,Ég vil gera það þannig, þó við höfum fengið tveggja mánaða frí var ég áfram hér á Íslandi og er enn að æfa með liðinu. Ég fór samt auðvitað til Danmerkur til að heimsækja fjölskylduna en við verðum hérna um jólin og fáum fjölskylduna hingað. Með allan þennan snjó hérna er miklu jólalegra heldur en nokkurn tíma í Danmörku þar sem rignir núna. Okkur líkar vel á Íslandi og viljum vera sem mest hérna því við búum hérna og hér vinn ég. Hér er framtíð okkar, sérstaklega næstu tvö árin. Ég er mjög ánægður hérna."
Eftir gott tímabil með Þrótti í sumar lék okkur forvitni á að vita hvort önnur félög hér á landi hafi reynt að fá hann í sínar raðir. Hann sagði að lokum:
,,Ég heyrði af einhverjum áhuga en það hafði enginn beint samband við félagið. Ég held að menn hafi vitað að ég væri með samning til árs í viðbót en ég heyrði af áhuga. Það er samt ekki leyfilegt að hringja beint í mig. En ég er tryggur félaginu því hér vil ég vera svo ég er ánægður meðað við höfum fundið lausn á því."





