Hoffenheim tjáir sig ekki um Ragnar Sigurðsson
Sænskir fjölmiðlar greindu frá því í gærkvöldi að útsendarar á vegum þýska úrvalsdeildarliðsins Hoffenheim hefðu, auk útsendara frá fjölmörgum öðrum liðum, fylgst með landsliðsmanninum Ragnari Sigurðssyni í 3-0 sigri IFK Gautaborgar gegn Gefle í sænsku úrvalsdeildinni í gær.
Heimildir Fótbolti.net herma ennfremur að Ragnar sé mjög ofarlega á óskalista Hoffenheim og eru miklar líkur á því að félagið geri tilboð í leikmanninn þegar félagaskiptaglugginn opnast í næsta mánuði.
Forráðamenn Hoffenheim voru hins vegar ekki tilbúnir að tjá sig um leikmanninn í samtali við Fótbolti.net í morgun.
,,Við staðhæfum ekkert um vangaveltur sem birtast í einstökum blöðum né um leikmenn, hvort sem þeir eru án félags eða samningsbundnir,” sagði Max Kazenwadel, talsmaður Hoffenheim, í samtali við Fótbolti.net.
Aðspurður hvort Ragnar væri ekki áhugaverður kostur fyrir Hoffenheim, svaraði Kazenwadel: ,,Það eru eflaust margir leikmenn sem hafa áhuga á að leika með Hoffenheim nú um mundir en hvort þeir henta liðinu eða eru á annað borð á óskalistanum get ég ekki tjáð mig um.”
Ennfremur vildi Kazenwadel ekki staðfesta hvort útsendari frá Hoffenheim hafi verið á leik IFK Gautaborgar og Gefle í gærkvöldi.
Hoffenheim byrjaði frábærlega í þýsku úrvalsdeildinni á þessu keppnistímabili og leiddi liðið deildina á tímabili en gengi þess hefur dalað til muna eftir áramót og er liðið nú í níunda sæti deildarinnar.



