Selfoss 1 - 1 KA
0-1 Steinn Gunnarsson ('16)
1-1 Guðmundur Þórarinsson ('18)
0-1 Steinn Gunnarsson ('16)
1-1 Guðmundur Þórarinsson ('18)
Selfoss og KA gerðu 1-1 jafntefli á Selfossvelli í dag. Gestirnir komust yfir eftir 16 mínútur, en Guðmundur Þórarinsson jafnaði tveimur mínútum seinna og var þetta hans fyrsta mark fyrir Selfoss, en hann er aðeins 17 ára gamall.
KA var spáð 4. sæti og Selfyssingum var spáð því 5. og eins og við var að búast var um hörkuleik að ræða. Í upphafi leiks var ekki mikið um spil og bæði lið virkuðu frekar óstöðug.
KA skoraði úr fyrsta færi leiksins og var það Steinn Gunnarsson sem skallaði boltann inn, eftir góða sendingu frá Dean Martin. Selfyssingar voru aðeins tvær mínútur að jafna leikinn og var Guðmundur Þórarinsson sem átti gott skot úr vítateig, eftir flottan undirbúning frá Árna Pál Hafþórssyni og staðan því orðin 1-1.
Eftir þessi tvö mörk lifnaði mjög yfir leiknum og nokkur hættuleg færi komu. Það fyrsta átti Ingþór Jóhann Guðmundsson, en Sandor í marki KA varði skalla hans meistaralega í horn. Á 26. mínútu átti Guðmundur Þórarinsson sendingu inn fyrir á Jón Guðbrandsson, en skalli hans var varinn. Tveimur mínútum seinna átti Gunnlaugur Jónsson þjálfari skalla í stöng eftir hornspyrnu.
Fleiri urðu færin ekki í fyrrihálfleik og staðan því 1-1 er menn gengu til búningsherbergja. KA tók yfirtökin í leiknum í upphafi seinni hálfleiks og áttu nokkur hálffæri og það hættulegasta átti Bjarni Pálmason en skot hans var varið. Selfyssingar fóru svo ekki í gang fyrr en eftir að 20 mínútur voru liðnar af seinni hálfleik. Þá átti Guðmundur Þórarinsson frábæra sendingu inn á Ingþór Jóhann, en Sandor markmaður kom vel út á móti, lokaði markinu og varði vel.
Á 76. mínútu opnuðu Einar Ottó Antonsson og Árni Páll vörn KA upp á gátt, Einar Ottó gaf svo boltann fyrir á Jón Daða Böðvarsson, sem var einn á auðum sjó, en skot hans fór hárfínt framhjá. Þremur mínútum seinna borgaði Jón Daði fyrir sig með góðum kross sem Einar Ottó skallaði framhjá.
Á 81. mínútu fengu KA sannkallað dauðafæri, er Arnar Már Guðjónsson setti boltann framhjá af markteig. Tveimur mínútum seinna stakk Einar Ottó inn á Árna Pál, hann var einn á móti markmanni, en var óheppinn með skot sitt sem fór framhjá.
Þegar um fimm mínútur voru eftir af venjulegum leiktíma átti Einar Ottó úr vítateig, sem var vel varið. Fleiri urðu færin ekki í þessum leik og bæði lið nokkuð sátt við að fá stig, þó Selfyssingar hafi verið betri í leiknum.
Ummæli eftir leik:
Gunnlaugur Jónsson þjálfari Selfyssinga:
„Þetta er mjög gott stig fyrir okkur, við misstum nokkra í meiðsl í vikunni og svo missum við Sævar Þór úr hóp klukkutíma fyrir leik. Þrátt fyrir allt sem gekk á í undirbúningnum, voru það við sem vorum nær því að vinna og vorum við virkilega óheppnir að skora ekki úr þessum færum sem við fengum í seinni hálfleik. Liðið barðist fram á síðustu stundu og margt virkilega jákvætt sem hægt er að taka úr þessum leik. Ég var eini utanbæjarmaðurinn í 16 manna hóp í dag, allir hinir hafa komið upp úr unglingastrafi Selfoss og það hlýtur að teljast einstakt í nútíma knattspyrnu. Þetta er virkilega spennandi hópur sem við Ómar erum að vinna með“ sagði Gunnlaugur Jónsson þjálfar Selfyssinga eftir leik.




