Valur Fannar í baráttu við Ian Jeffs í leiknum í fyrrakvöld. Jeffs gekk í raðir Vals frá Fylki í vetur.
Valur Fannar Gíslason fyrirliði Fylkis hefur sent frá sér yfirlýsingu vegna ummæla sem hann lét eftir sér hafa í fréttum Stöðvar 2 í gær um lið Vals sem hann sagði dýrasta lið Íslandssögunnar.
Valur Fannar segir í yfirlýsingunni að ummælin hafi ekki verið til að gera lítið úr mótherjunum heldur aðeins sögð til gamans.
Valur Fannar segir í yfirlýsingunni að ummælin hafi ekki verið til að gera lítið úr mótherjunum heldur aðeins sögð til gamans.
,,Þeir spiluðu eins og við gerðum ráð fyrir, þeir eru náttúrulega með dýrasta lið Íslandssögunnar og auðvitað eiga þeir að gera betur en þeir voru klárlega slakari aðilinn í dag," sagði Valur Fannar í fréttum Stöðvar 2 í gær.
Hér að neðan má sjá yfirlýsinguna frá honum sem var birt á vefjum Vals og Fylkis í dag.
Ég undirritaður vil hér með draga til baka ummæli mín eftir leik Fylkis og Vals í Pepsídeild karla þann 10. mai síðastliðinn. Þau ummæli sem ég lét hafa eftir mér voru engan veginn til þess fallin að gera lítið úr mótherjum mínum né rýra það góða starf sem á sér stað á Hlíðarenda heldur eingöngu sögð til gamans. Ég á marga góða félaga í Val og voru orð mín eingöngu sögð til að skjóta léttum skotum á félaga mína í Val þar sem við Fylkismenn vorum klárlega í hlutverki litla liðsins í þessum leik.
Að lokum vil ég þakka Valsmönnum fyrir góðan leik og óska þeim alls hins besta á komandi sumri.
Valur Fannar Gíslason




