ÍR 2-5 Selfoss
0-1 Arilíus Marteinsson ('9)
0-2 Jón Guðbrandsson ('14)
1-2 Erlingur Jack Guðmundsson (víti, '25)
2-2 Árni Freyr Guðnason ('29)
3-2 Jón Guðbrandsson ('36)
4-2 Ingólfur Þórarinsson ('55)
5-2 Arilíus Marteinsson ('62)
0-1 Arilíus Marteinsson ('9)
0-2 Jón Guðbrandsson ('14)
1-2 Erlingur Jack Guðmundsson (víti, '25)
2-2 Árni Freyr Guðnason ('29)
3-2 Jón Guðbrandsson ('36)
4-2 Ingólfur Þórarinsson ('55)
5-2 Arilíus Marteinsson ('62)
ÍR og Selfoss mættust í kvöld á ÍR-vellinum í Breiðholti í frábæru veðri sem einkenndist af miklum hita og logni og því frábærar knattspyrnuaðstæður, þetta var jafnframt fyrsti heimaleikur ÍR á tímabilinu.
Gestirnir í Selfoss byrjuðu þó leikinn mun betur og eftir einungis 9. mínútna leik þá kom Arilíus Marteinsson þeim yfir með laglegu marki eftir sendingu frá Guðmundi Þórarinssyni sem átti eftir að láta mikið af sér kveða í leiknum.
Þeir bættu frekar við fimm mínútum síðar eftir slæm mistök í vörn heimamanna og komst Arilíus inn fyrir og skaut að marki, en Þorsteinn Einarsson, markvörður ÍR varði vel. Jón Guðbrandsson var þó kominn inn í teiginn og skoraði örugglega í frákastinu.
Leikruinn róaðist örlítið eftir þessi tvö mörk Selfyssinga á stuttum kafla og hófu ÍR-ingar að sækja framar á völlinn. Á 25. mínútu fá þeir hornspyrnu sem endar með klafsi inn í teig og dæmdi dómari leiksins vítaspyrnu. Erlingur Jack Guðmundsson steig á punktinn og skoraði af miklu öryggi hægra megin og staðan því 2-1.
Þetta kom ÍR-ingum í gang og sóttu þeir af miklum krafti og uppskáru þar með jöfnunarmarkið á 29. mínútu. Davíð Már Stefánsson, 17 ára kantmaður liðsins fékk þá boltann vinstra megin og átti þríhyrningssamspil við Guðfinn Ómarsson og lagði svo boltann út í teig á Árna Frey Guðnason sem skoraði laglegt mark í hægra hornið.
Þeir voru svo nálægt því að komast yfir stuttu síðar þegar Selfyssingar björguðu á línu eftir laglega hornspyrnu.
Á 36. mínútu komust gestirnir þó aftur yfir þegar þeir fengu aukaspyrnu hægra megin við mark ÍR-inga. Guðmundur Þórarinsson tók aukaspyrnua sem rataði beint á kollinn á Jóni Guðbrandssyni og í netið.
Fjórum mínútum síðar bættu þeir enn frekar við, en það var mark leiksins á ÍR-vellinum þegar Ingólfur Þórarinsson, betur þekktur sem Ingó úr Idolinu skoraði frábært mark með hægri fótar skoti og skrúfaði honum laglega upp í hægra hornið á markinu og því staðan í hálfleik 4-2 Selfoss í vil.
Síðari hálfleikurinn var tilþrifaminni en sá fyrri og voru fá marktækifæri í honum, en Árni Freyr átti hættulegt færi sem er óvíst að getur kallast færi eftir aukaspyrnu vinstra megin á vellinum þegar hann sendi boltann inn í , sem skoppaði í jörðina og rétt yfir markið.
Á 62. mínútu dró aftur til tíðinda hjá Selfyssingum þegar þeir fengu aukaspyrnu rétt fyrir utan teig, margir töldu þá ætla að láta ríða á vaðið og skjóta, en svo var ekki og kom góð sending fyrir markið þar sem Arilíus Marteinsson var mættur og skoraði laglega.
Leikurinn róaðist mikið eftir það og gerðist lítið markvert þangað til á 87. mínútu þegar Árni Freyr fékk gott skotfæri inni í teig, en markvörður Selfyssinga varði boltann vel og hreinsuðu gestirnir.
Lokatölur því á ÍR-vellinum 5-2 Selfoss í vil og því annar tapleikur ÍR í 1.deildinni, en liðið tapaði 3-1 fyrir HK í 1.umferð deildarinnar. Selfoss aftur á móti er með fjögur stig eftir þessa tvo leiki og gerðu 1-1 jafntefli við KA í 1.umferð.
Áhorfendur: Það voru ríflega 250 manns á ÍR-vellinum í kvöld, enda ný sæti lögð á völlinn fyrir nokkru.
Maður leiksins: Guðmundur Þórarinsson (Selfoss)





