Amorim, Frank, Ten Hag, De Bruyne, Isak, Olise, Gyökeres og fleiri góðir í slúðurpakka dagsins
   fim 18. júní 2009 07:33
Alexander Freyr Tamimi
Heimild: Sky 
Mascherano er enn á innkaupalista Barcelona
Javier Mascherano gæti farið til Evrópumeistara Barcelona.
Javier Mascherano gæti farið til Evrópumeistara Barcelona.
Mynd: Getty Images
Umboðsmaður Javier Mascherano leikmanns Liverpool ræddi við Barcelona í gærkvöldi og gæti svo farið að Evrópumeistararnir munu fá Argentínumanninn til liðs við sig.

Ekki hefur enn verið samið við Liverpool um kaupverð en enska félagið á að hafa leyft Walter Tamer umboðsmanni Mascherano að fara til Katelóníu og heyra hvað Börsungar hafa upp á að bjóða.

Rafa Benítez knattspyrnustjóri Liverpool hefur sagt að Barcelona búi ekki yfir því fjármagni sem þarf til að kaupa Mascherano en samlandi hans Lionel Messi vill ólmur fá hann til liðs við sig.

„Það væri frábært ef Barcelona myndi kaupa Javier, sem leikmann og sem vin,“ sagði Messi við The Sun.

„Það væri gott að hafa hann bæði innan vallar sem utan. Hann er frábær leikmaður og væri stórkostleg kaup.“
Athugasemdir
banner
banner