Savinho færist nær Spurs - Inacio á lista Liverpool - Man Utd heldur í vonina um Anderson
   lau 27. júní 2009 19:13
Fótbolti.net
1.deild umfjöllun: Tíu Selfyssingar lögðu Fjarðabyggð
Einar Matthías Kristjánsson skrifar frá Selfossi
Sævar Þór skoraði tvívegis í dag.
Sævar Þór skoraði tvívegis í dag.
Mynd: Matthías Ægisson
Jóhann Benediktsson skoraði fyrir Fjarðabyggð.
Jóhann Benediktsson skoraði fyrir Fjarðabyggð.
Mynd: Austurglugginn - Gunnar
Jóhann Ólafur Sigurðsson.
Jóhann Ólafur Sigurðsson.
Mynd: Óli Brynjar
Selfoss 2-1 Fjarðabyggð:
0-1 Jóhann Ragnar Benediktsson ('25, víti)
1-1 Sævar Þór Gíslason ('40)
2-1 Sævar Þór Gíslason ('47, víti)
Rautt spjald: Stefán Ragnar Guðlaugsson ('25)

Það er óhætt að segja veðurguðirnir hafi verið í góðu skapi á Selfossi í dag er heimamenn fengu Fjarðabyggð í heimsókn í toppslag 1.deildarinnar í dag, hávaða logn og grenjandi sól.

Það var þó engu líkara fyrstu mínúturnar en að bæði lið og áhorfendur væru að venja sig við hitann því fyrstu 20.mín gerðist afar lítið í leiknum, mikið var um baráttu á miðjunni og markverðast var að Fjarðabyggð átti tvö færi sem ekkert varð úr.

En á 25.mínútu gerist umdeilt atvik sem færði vissulega líf í leikinn. Ágúst Örn Arnarson fékk góða sendingu innfyrir vörn Selfyssinga.

Ágúst náði boltanum en var með bæði Agnar Braga og Stefán Ragnar miðverði Selfyssinga sitthvorumegin við sig og Jóhann Ólaf markmann á móti sér, honum fipaðist fótur og féll í teignum, slakur dómari leiksins Hans Kristján Scheving dæmdi umsvifalaust víti og rak Stefán Ragnar Guðlaugsson svo útaf með rautt. Þrátt fyrir heiðarlegar tilraunir heimamanna þá tókst þeim ekki frekar en öðrum að deila við dómarann, Stefán Ragnar fór útaf, Ásgeir Örn kom í miðvörðinn í hans stað og Ingþór Jóhann kom niður í bakvörð. Vítaspyrnuna tók Jóhann Ragnar Benediktsson fyrir Fjarðabyggð og skoraði af miklu öryggi, 0-1.

Eftir þetta var mun meira líf í báðum liðum, Selfyssingar sýndu mikinn karakter og börðust eins og ljón um alla bolta og fóru að pressa austfirðingana mun meira. Á 40.mínútu skilaði það svo loks árangri, Ingþór Jóhann sem kominn var í bakvörðinn vann boltann af miklu harðfylgi á vallarhelmingi Selfyssinga, tók á rás upp kanntin og sendi boltan loks á Einar Ottó Antonsson á miðsvæðinu, hann var fljótur að finna frænda sinn Jón Guðbrandsson sem sendi laglegan bolta innfyrir vörn Fjarðabyggðar á markahrókinn Sævar Þór Gíslason sem laumaði boltanum örugglega í hornið framhjá Rajkovic í markinu, ekki í fyrsta skipti sem Sævar Þór skorar svona mark á ferlinum og staðan því 1-1 í hálfleik.

Seinni hálfleikinn byrjuðu Selfyssingar svo af krafti og mátti ekki sjá á leik þeirra að þeir væru manni færri. Á 47.mínútu tók Jón Guðbrandsson gott hlaup upp vinstri kanntinn og sendi góðan bolta innfyrir vörnina á Sævar Þór sem kom á mikilli siglingu. Rajkovic í markinu virtist ætla að ná boltanum en Sævar var á undan og náði að pota í hann, Rajkovic greip því í Sævar í staðin fyrir boltann og aftur benti Hans Kristján á punktinn, víti til Selfoss og gult á Rajkovic í markinu. Sævar Þór skoraði svo af öryggi úr vítinu og kom Selfyssingum í 2-1.

Eftir þetta var leikurinn nokkuð opinn og hættuleg færi á báða bóga, á 53.mínútu fengu Fjarðabyggð sannkallað dauðafæri og er í raun ótrúlegt að þeir hafi ekki jafnað þar, fyrst átti Andri Þór hörkuskot sem fór í þverslánna og niður í markteig, þaðan skoppaði boltinn upp í loftið og Jóhann Ragnar náði mjög góðum skalla sem Jóhann Ólafur varði vel í marki Selfyssinga. Selfyssingar voru svo nokkrum sinnum við það að sleppa í gegn en réðu ekki við góðan markvörð Fjarðabyggðar Srdjan Rajkovic.

Jón Guðbrandsson komst t.am. í gegn í eitt skiptið en færið var of þröng fyrir hann og Rajkovic varði vel í horn, úr horninu sem var raunar afar slakkt barst boltinn aftur til Jóns Guðbrandssonar sem náði að koma honum fyrir sig og taka glæsilega hjólhestaspyrnu sem Rakjovic mátti hafa sig allan við að verja í horn.

Síðustu mínútur leiksins pressuðu gestirnir síðan Selfyssinga mikið án árangurs og niðurstaðan því mjög góður sigur Selfyssinga eftir að hafa verið einum færri í 65.mínútur.

Ummæli eftir leik:
Heimamenn völdu markvörðinn Jóhann Ólaf Sigurðsson mann leiksins rétt á undan Sævari Þór en báðir voru þeir afar líflegir á sitthvorum enda vallarins. Jóhann Ólafur kom aftur í mark heimamanna eftir að hafa verið í banni er Selfoss lá gegn Leikni og var afar sáttur við að fá 3 stig út úr þessum leik.

,,Þetta var mjög sætur sigur og sýnir vel þann karakter sem býr í liðinu, að vinna sig aftur inn í leikinn eftir að hafa verið einum færri lungað úr leiknum," sagði Jóhann Ólafur og bætti við: ,,Það vantaði svona frammistöðu hjá liðinu eftir skellinn gegn Leikni."

Varðandi rauða spjaldið sem Stefán Ragnar fékk þá var Jóhann eins og aðrir félagar sýnir ekki par sáttur við þann dóm ,,Þetta var nú ansi strangur dómur fannst mér, bæði Agnar og Stefán Ragnar eru alveg samsíða sóknarmanninum og ég gat ekki séð að þeir hefðu brotið á honum, því fannst mér víti fyrir það fyrsta nokkuð strangur dómur en rautt spjald alveg út í hött. En svonalagað gerist og við náðum að bregðast við á hárréttan hátt."

Jóhann Ólafur vildi þó gera sem minnst úr þeirri staðreynd að Selfoss trónir nú eitt á toppi 1.deildarinnar. ,,Við spáum ekkert í því, hérna er það gamla klisjan að taka bara einn leik fyrir í einu, næst er það Afturelding í Mosó," sagði Jóhann Ólafur kampakátur að lokum.
Slapp
banner
banner
banner