Afturelding 0 - 4 Selfoss
0-1 Sævar Þór Gíslason (’17)
0-2 Sævar Þór Gíslason (’34)
0-3 Sævar Þór Gíslason (’41)
0-4 Sævar Þór Gíslason ('68, víti)
0-1 Sævar Þór Gíslason (’17)
0-2 Sævar Þór Gíslason (’34)
0-3 Sævar Þór Gíslason (’41)
0-4 Sævar Þór Gíslason ('68, víti)
Sævar Þór Gíslason skoraði öll fjögur mörk Selfyssinga þegar að liðið sigraði Afturelding 4-0 á Varmárvelli í kvöld og endurheimti þar með toppsætið í 1.deild.
Sævar skoraði þrennu í fyrri hálfleiknum og bætti síðan við marki úr vítaspyrnu í þeim síðari en það var níunda markið í sumar hjá þessum magnaða framherja. Mörkin hefðu auðveldlega getað orðið fleiri í leiknum en Mosfellingar áttu þrjú skot í marksúlur Selfyssinga auk þess sem gestirnir fengu færi til að bæta við mörkum.
Rannver Sigurjónsson leikmaður Aftureldingar átti fyrstu alvöru marktilraun kvöldsins en aukaspyrna hans af 25 metra færi small í stönginni. Skömmu síðar komust Selfyssingar yfir en Sævar Þór Gíslason vippaði þá yfir Kjartan Pál Þórarinsson í markinu eftir að hafa fengið sendingu inn fyrir.
Arilíus Marteinsson átti skalla rétt yfir fyrir Selfyssinga áður en að Sævar bætti við öðru marki. Jón Fannar Magnússon miðjumaður Aftureldingar skaut þá boltanum í Arilíus og af honum fór boltinn inn fyrir á Sævar sem skoraði af öryggi.
Rannver komst aftur nálægt því að skora nokkrum mínútum síðar en skalli hans hafnaði þá í þverslánni.
Á 41.mínútu innsiglaði Sævar Þór síðan þrennu sína. Jón Daði Böðvarsson átti þá sendingu inn á Arilíus, Kjartan Páll varði skot hans en boltinn féll beint fyrir fætur Sævars sem átti ekki í vandræðum með að skora og staðan 3-0 í leikhléi.
Síðari hálfleikur byrjaði af krafti og bæði lið komust nálægt því að skora. Sigurður Helgi Harðarson átti skot í slána fyrir Aftureldingu og Arilíus átti aukaspyrnu í stöngina á hinum enda vallarins.
Sævar Þór var hvergi nærri hættur og hann átti hjólhestarspyrnu sem sleikti slána áður en hann náði að setja fjórða markið.
Sævar Þór féll þá við þegar að fyrirgjöf kom inn á teiginn og Gunnar Jarl Jónsson dómari leiksins dæmdi vítaspyrnu eftir ábendingu frá Inga Frey Arnarsyni aðstoðardómara. Sævar Þór fór sjálfur á punktinn og skoraði fjórða mark sitt og fjórða mark Selfyssinga.
Ekki voru fleiri mörk skoruð í leiknum en Selfyssingar eru eftir sigurinn í kvöld með þriggja stiga forskot á Hauka á toppnum og þessi lið mætast í toppslag næstkomandi fimmtudag.
Ummæli eftir leik:
Sævar Þór Gíslason framherji Selfyssinga:
,,Þetta var sætt, þetta var liðsheildin. Það er stígandi í þessu og við erum ein heild."
,,Þetta er einn af betri leikjm mínum í sumar og þetta datt fyrir mig. Ég hefði reyndar viljað sjá hjólarann í netinu en þetta er flott. Ég kann greinilega vel við mig hérna. Þetta er flottur og góður völlur og það er gaman að spila hér. Það væri reyndar skemmtilegra ef það væri ekki hlaupabraut hérna.”
,,Við erum komnir á toppinn aftur og við ætlum að vera þar. Næsti leikur er toppslagur, það verður vonandi fullt af fólki, gott veður og gaman. Það verður gaman að fá Haukana heim.”
Ólafur Ólafsson þjálfari Aftureldingar:
,,Við vorum ekki tilbúnir. Við mættum flatir og getum sjálfum okkur um kennt held ég. Þetta var ekki okkar dagur og menn verða að hysja upp um sig brækurnar og vera klárir í næsta leik.”
,,Sævar nýtti hvert einasta færi sem hann fær, hann er þannig leikmaður. Það má ekki líta af honum, þetta er flottur senter.”


