Valur 3 - 2 KA
1-0 Helgi Sigurðsson ('11)
1-1 David Disztl ('43)
2-1 Marel Baldvinsson ('55)
2-2 Andri Fannar Stefánsson ('61)
3-2 Sigurbjörn Örn Hreiðarsson ('117)
1-0 Helgi Sigurðsson ('11)
1-1 David Disztl ('43)
2-1 Marel Baldvinsson ('55)
2-2 Andri Fannar Stefánsson ('61)
3-2 Sigurbjörn Örn Hreiðarsson ('117)
Leik lokið: Leik Vals og KA hér á Vodafonevellinum er lokið með 3-2 sigri Valsaranna með marki á lokamínútum framlengingarinnar. Gríðarleg vonbrigði fyrir Akureyringana sem geta þó verið stoltir af sinni spilamennsku. Umfjöllun og viðtöl koma síðar í kvöld.
117. mín: MAAAAAAAARK!!! Sigurbjörn Örn Hreiðarsson er að skora mark hér fyrir Valsarana og er þetta mjög líklega sigurmarkið!! Hvílík vonbrigði fyrir KA sem hafa átt frábæran leik, en þetta er ekki búið fyrr en dómarinn flautar.
115. mín: Færin hafa látið á sér standa undanfarnar mínútur en rétt í þessu átti Helgi Sigurðsson skalla sem fór naumlega yfir markið. Einungis fimm mínútur þar til leikurinn verður flautað af og allt bendir til þess að vítaspyrnukeppni sé yfirvofandi. Valsararnir virðast þó vera líklegri til að klára dæmið í framlengingunni.
108. mín: Hvílíkt og annað eins!!! Marel Baldvinsson kemst í frábært skotfæri eftir lúmska fyrirgjöf frá hægri og hann nær fínu skoti sem fer framhjá markverðinum. Haukur Heiðar Hauksson varnarmaður KA nær þó að bjarga á línunni! Spennan hér á Vodafonevellinum er orðin rafmögnuð!
105. mín: Þá er síðari hálfleikur framlengingar hafinn. KA gerði eina skiptingu, út af fór Guðmundur Óli Steingrímsson og inn fyrir hann kom Orri Gústafsson.
Hálfleikur í framlengingu: Það hefur verið flautað til hálfleiks í framlengingunni. Klukkuna vantar einungis korter í vítaspyrnukeppni ef ekkert breytist. En fyrir þá sem vildu virkilega vita hvað klukkan er, þá er hún 11 mínútur yfir átta.
102. mín: Mark ársins hjá Bjarna hvað?? Það munaði engu að David Disztl markaskorari KA hefði bætt við sínu öðru marki með stórkostlegri bakfallsspyrnu. Haraldur í markinu varði þó naumlega og boltinn barst síðan til Andra Fannars sem átti skot naumlega framhjá. Hvorugt liðanna stefnir greinilega á vítaspyrnukeppni.
101. mín: Nei sko! Bjarni Ólafur Eiríksson á þrumuskot af löngu færi og engu munar að úr þessu skoti verði bara mark, en markvörður KA ver glæsilega í horn. Þetta hefði nú orðið mark ársins ef þessi hefði lent inni...eeeen hann gerði það ekki.
97. mín: Viktor Unnar Illugason kemst í prýðilegt skotfæri en skot hans fer naumlega framhjá markinu. Vallarþulurinn var tilbúinn að kalla nafn hans í míkrafóninn en því miður fyrir hann fékk hann ekki að þenja rödd sína þarna.
93. mín: Varðandi þetta með jakkafötin, þá er svarið nei. Dean skellti sér bara í bláa peysu yfir KA treyjuna og virðist bara kunna vel við sig þannig.
92. mín: Ian Jeffs fær gult spjald fyrir heldur harkalega tæklingu.
91. mín: Framlengingin er hafin og byrja Valsararnir með boltann. KA gerir eina skiptingu, Ingi Freyr Hilmarsson kemur inn á og út fer þjálfarinn Dean Martin fer af velli. Ætli hann skelli sér í jakkafötin til að matcha Atla Eðvaldsson?
Framlenging: Venjulegum leiktíma er lokið og staðan er ennþá 2-2. Það verður því gripið til framlengingar hérna á Vodafonevellinum í kvöld.
92. mín: Minnstu munaði að Reynir Leósson myndi tryggja Völsurum sigur í blálokin. Þeir rauðu fengu hornspyrnu og Reynir náði skalla sem fór grátlega naumlega yfir.
89. mín: Helgi Sigurðsson kemst í ákjósanlegt færi inni í vítateig KA eftir gott spil frá Val en varnarmaður bjargar fyrir horn.
83. mín: Leikurinn er fjörugur og skemmtilegur þó að dauðafærin séu ekki á hverju strái. Baráttan er í fyrirrúmi og ekki spilla stórskemmtilegir stuðningsmenn KA liðsins fyrir. Þeir hafa verið hressustu mennirnir á svæðinu og eiga hrós skilið.
78. mín: Valur fær aukaspyrnu á stórhættulegum stað og tekur Ian Jeffs hana. Sandor Matus í markinu blakar knettinum í horn en hann hefði líkast til farið yfir hvort eð er. En ég sjálfur hefði nú ekki tekið sénsinn, hefðir þú gert það?
76. mín: Sóknarþungi Valsara hefur verið talsverður undanfarnar mínútur og þurfa KA-menn að fara að passa sig ef þeir vilja fara með sigur af hólmi. Heimamenn virðast líklegri til að klára leikinn en svo er ekki nema stundarfjórðungur í það að við fáum framlengingu.
70. mín: Guðmundur Steinar Hafsteinsson tók mögulega lélegustu ákvörðun lífs síns rétt í þessu. Hann var kominn í ágætis stöðu inni í teig en í stað þess að leggja boltann út á Helga Sigurðsson reyndi hann fáránlegt skot sem fór framhjá markinu.
66. mín: Í öllum hasarnum gleymdist hér að nefna að Valur hefur gert þrjár skiptingar. Ólafur Páll Snorrason kom inn á fyrir Baldur Ingimar Aðalsteinsson á 56. mínútu en tognaði nánast samstundis og fór út af aftur fimm mínútum síðar fyrir Viktor Unnar Illugason. Pétur Georg Markan fór síðan út af á 64. mínútu fyrir Guðmund Steinar Hafsteinsson.
61 mín: MAAAARK!!! KA eru komnir til baka með stórglæsilegu marki frá Andra Fannari Stefánssyni!!! Hann átti skot af löngu færi sem hafði viðkomu í Atla Sveini Þórarinssyni og fór þaðan í netið. Stórglæsilegt mark og fyllilega verðskuldað!
55. mín: MAAAAAAAAAARK!!! Marel Baldvinsson kemur Völsurum yfir! Sannfærandi eða ekki sannfærandi, Valsararnir eru komnir aftur yfir!!
53. mín: Lið KA er klárlega sprækara þessa stundina og eru Valsararnir ekki mjög sannfærandi. Þeir hefðu hæglega getað náð meiri forystu í fyrri hálfleik þegar spilamennska þeirra var fín en núna eru gestirnir bara ferskari.
48. mín: Hvílíkt dauðafæri sem KA fær! Guðmundur Óli Steingrímsson fær dauðafrían skalla inni í teig sem Haraldur í markinu ver meistaralega! Hreint ótrúlegt að KA hafi einfaldlega ekki náð forystunni þarna.
46. mín: Síðari hálfleikurinn hér á Vodafonevellinum er hafinn og stuðningsmenn KA hefja raust sýna á ný. Þeir hafa verið mjög skemmtilegir hér í dag.
Hálfleikur: Flautað hefur verið til leikhlés hérna á Vodafonevellinum og er staðan 1-1. Valsararnir hefðu getað verið búnir að bæta við mörkum en aftur á móti hafa færin ekki verið allt of mörg í þessum leik. KA hafa spilað alveg nokkuð agaðan leik og er nýting færa þeirra býsna góð. Eitt mark úr eina alvöru færinu.
43. mín: MAAAAAAAAAARK!!! KA eru búnir að jafna metin!! Óhætt er að segja að þetta sé gegn gangi leiksins en vel gert hjá gestunum engu að síður. Þeir fengu aukaspyrnu talsvert fyrir utan teiginn hægra megin sem Haukur Heiðar Hauksson tók. Spyrnan fór beint á kollinn á David Disztl sem var aleinn og yfirgefinn í teignum. Haraldur Björnsson markvörður fór út í skógarhlaup og átti Disztl ekki í vandræðum með að skalla yfir hann og í netið.
42. mín: Pétur Georg Markan á góðan sprett upp vinstri kantinn sem endar með ágætis skoti í teignum sem markvörður KA ver.
35. mín: Hvernig fór þessi bolti ekki inn? Það skapaðist eitthvað klafs í teignum og Valsararnir náðu tveimur skotum á mark nánast á marklínunni. Sandor í marki KA varði þó vel.
31. mín: Baldur Ingimar átti góðan sprett inni í teignum áður en hann skaut talsvert framhjá. Hann hefði mögulega átt að leggja boltann út á samherja því að skotfærið var þröngt.
24. mín: Sóknarþungi Valsaranna er aðeins farinn að þyngjast. Þeir fengu rétt í þessu frambærilega sókn sem virtist þó hafa runnið út í sandinn eftir að Pétur Georg tapaði boltanum. Boltinn barst þó til Baldurs Ingimars sem hlóð upp í skot sem fór ekki langt framhjá markinu.
22. mín: Valur fær aukaspyrnu á hættulegum stað hægra megin við vítateiginn. Baldur Ingimar þrumar lágum bolta inn í teiginn og munar engu að Pétur Georg Markan náði að pota honum inn en hann rétt missir af knettinum.
20. mín: Engu munar að Valsarar auki forskotið eftir skot frá Helga Sigurðssyni. Varnarmaður nær þó að renna sér fyrir skotið á einhvern ótrúlegan hátt.
17. mín: Sigurbjörn Örn Hreiðarsson á skot sem fer naumlega yfir markið eftir fínan undirbúning frá Marel Baldvinssyni. Annars er allt mjög afslappað og fínt hérna á Vodafonevellinum.
11.mín: MAAAAARRRRKKKKK!!! Helgi Sigurðsson kemur Val yfir. Eftir fyrirgjöf frá Baldri Aðalsteinssyni lagði Marel Baldvinsson boltann á Helga sem skoraði.
8.mín: Stuðningsmenn KA láta vel í sér heyra á pöllunum en um er að ræða meðlimi í stuðningsmannahópnum Vinir Sagga.
1.mín: Leikurinn er hafinn. Guðmundur Viðar Mete er ekki í hóp hjá Val og Ian Jeffs er í nýrri stöðu sem hægri bakvörður.
17:52: Byrjunarliðin eru klár.
Valur: Haraldur Björnsson, Ian Jeffs, Reynir Leósson, Atli Sveinn Þórarinsson, Bjarni Ólafur Eiríksson, Baldur Ingimar Aðalsteinsson, Baldur Bett, Sigurbjörn Hreiðarsson, Pétur Georg Markan, Helgi Sigurðsson, Marel Jóhann Baldvinsson.
Varamenn: Kjartan Sturluson, Steinþór Gíslason, Hafþór Ægir Vilhjálmsson, Einar Marteinsson, Guðmundur Steinn Hafsteinsson, Viktor Unnar Illugason, Ólafur Páll Snorrason.
KA: Sandor Matus, Haukur Heiðar Hauksson, Norbert Farkas, Þórður Arnar Þórðarson, Hjalti Már Hauksson, Dean Martin, Arnar Már Guðjónsson, Srdjan Tufegdzic, Andri Fannar Stefánsson, Guðmundur Óli Steingrímsson, David Disztl.
Varamenn: Ingi Freyr Hilmarsson, Bjarni Pálmason, Steinþór Már Auðunsson, Hallgrímur Mar Steingrímsson, Sigurjón Fannar Sigurðsson, Magnús Birkir Hilmarsson, Orri Gústafsson.
17.34: Í kvöld munu Valsararnir spila sinn fyrsta leik undir stjórn Atla Eðvaldssonar, en hann kom til landsins í gær og stýrði liðinu á sinni fyrstu æfingu. Liðinu hefur gengið brösulega í deildinni og þurftu þeir að þola 5-0 skell síðast hér á Vodafonevellinum. Þeir vonast væntanlega til þess að valda stuðningsmönnum sínum ekki sömu vonbrigðum hér í kvöld gegn Akureyringunum í KA.
17.30: Góðan daginn kæru lesendur og verið velkomnir í beina textalýsingu úr leik Vals og KA í 16-liða úrslitum VISA-bikars karla á Vodafonevellinum. Leikurinn hefst á slaginu 18:00 og munum við að sjálfsögðu fylgjast grannt með gangi mála. Byrjunarliðin hjá báðum liðum verða komin hér inn á síðuna innan skamms.



