Atli Eðvaldsson fór með sigur af hólmi í sínum fyrsta leik
Valur 3 - 2 KA
1-0 Helgi Sigurðsson ('11)
1-1 David Disztl ('43)
2-1 Marel Baldvinsson ('55)
2-2 Andri Fannar Stefánsson ('61)
3-2 Sigurbjörn Örn Hreiðarsson ('117)
1-0 Helgi Sigurðsson ('11)
1-1 David Disztl ('43)
2-1 Marel Baldvinsson ('55)
2-2 Andri Fannar Stefánsson ('61)
3-2 Sigurbjörn Örn Hreiðarsson ('117)
Valur vann í dag dramatískan sigur á KA í framlengdum leik í 16 liða úrslitum VISA-bikars karla á Vodavonevellinum. Leiknum lauk með 3-2 sigri heimamanna en Sigurbjörn Örn Hreiðarsson skoraði sigurmarkið á 117. mínútu í framlengingu.
Fyrsta mark leiksins kom heldur snemma en á 11. mínútu kom Helgi Sigurðsson heimamönnum yfir eftir laglegan sóknarleik. Baldur Ingimar Aðalsteinsson átti þá fína fyrirgjöf sem Marel Baldvinsson tók á móti. Sá síðarnefndi renndi boltanum síðan til Helga sem skoraði.
Mikill baráttuandi var í KA liðinu en heimamenn höfðu þó völdin og hefðu getað bætt við mörkum. Sigurbjörn hefði getað bætt við marki fyrir liðið og Helgi fékk einnig gott færi skömmu síðar. Baldur Ingimar átti einnig tvö skot með skömmu millibili sem fóru bæði naumlega framhjá markinu.
Það var þvert gegn gangi leiksins sem lið KA jafnaði metin rétt fyrir leikhlé þegar David Disztl skallaði boltann í netið eftir aukaspyrnu utan teigs. Haraldur Björnsson markvörður Valsara fór þá út í furðulegt skógarhlaup og átti Disztl ekki í vandræðum með að skalla boltann yfir hann og jafna metin.
Staðan var því 1-1 þegar Kristinn Jakobsson dómari flautaði til leikhlés en Valsararnir voru þó búnir að vera talsvert sterkari aðilinn í fyrri hálfleik.
Minnstu munaði að gestirnir frá Akureyri hefðu komist yfir strax í byrjun síðari hálfleiksins þegar Guðmundur Óli Steingrímsson fékk dauðafrían skalla inni í teig. Haraldur í markinu varði skallann þó meistaralega og kom í veg fyrir að KA næði forystunni.
Lið KA var sprækara í síðari hálfleiknum og virkuðu Valsarar ekki nándar nærri eins sannfærandi í fyrri hálfleik og þeir höfðu gert í þeim síðari. Það kom þó ekki að sök því þeir náðu forystunni á nýjan leik þegar Marel Baldvinsson potaði knettinum í netið.
Það var þó ekki langlíf forysta vegna þess að einungis sex mínútum síðar jafnaði Andri Fannar Stefánsson metin með frábæru skoti utan teigs. Skot Andra hafði viðkomu í varnarmanni Vals og fór þaðan í netið og staðan orðin jöfn.
Valsararnir voru sterkari það sem eftir lifði síðari hálfleiksins en það verður þó ekki af liði KA tekið að þeir sýndu oft á tíðum mjög fína takta. Valsarar áttu í fullu fangi með að reyna að brjótast í gegnum vörn liðsins og það gekk oft á tíðum ekkert sérstaklega vel. Staðan var ennþá 2-2 þegar venjulegur leiktími var liðinn og þurfti því að grípa til framlengingar.
Framlengingin var mjög spennandi og skemmtileg og ekki fyrir viðkvæma. Bæði lið fengu sín færi í fyrri hálfleiknum og var Bjarni Ólafur Eiríksson meðal annars hársbreidd frá því að ná forystunni aftur fyrir Val þegar hann átti þrumuskot af löngu færi sem var varið naumlega í horn. Hinum megin átti David Disztl síðan fyrirtaks bakfallsspyrnu sem Haraldur varði glæsilega.
Í síðari hálfleik framlengingar fór sókn Valsaranna að þyngjast og lá markið í loftinu. Marel Baldvinsson var hársbreidd frá því að skora á 108. mínútu en Haukur Heiðar Hauksson varnarmaður KA bjargaði á marklínu.
Allt virtist stefna í vítaspyrnukeppni þrátt fyrir yfirburði Valsaranna en þegar einungis þrjár mínútur voru eftir tók Sigurbjörn Örn Hreiðarsson sig til og skoraði þriðja mark þeirra. Hann átti gott skot utan teigs sem sigldi inn í netið og var sigurinn nú í höfn fyrir Val.
KA gerðu allt hvað þeir gátu til að jafna metin en þeim tókst það ekki og þurftu þeir því að sætta sig við gríðarlega svekkjandi tap eftir 120 mínútur á Vodafonevellinum. Leikur þessi var klárlega sá skemmtilegasti sem undirritaður hefur séð í VISA-bikarnum í langan tíma og geta gestirnir verið stoltir af spilamennsku sinni. Þrátt fyrir það eru það Valsararnir sem eru komnir áfram í 8-liða úrslitin en ljóst er af spilamennskunni í dag að lið KA á fullt erindi í efstu deild hér á landi. Ef þeim tekst að spila svona í hverjum einasta deildarleik líður ekki á löngu þar til við munum sjá þá í deild hinna bestu.
Byrjunarlið Vals: Haraldur Björnsson, Ian Jeffs, Reynir Leósson, Atli Sveinn Þórarinsson, Bjarni Ólafur Eiríksson, Baldur Ingimar Aðalsteinsson, Baldur Bett, Sigurbjörn Hreiðarsson, Pétur Georg Markan, Helgi Sigurðsson, Marel Jóhann Baldvinsson.
Byrjunarlið KA: Sandor Matus, Haukur Heiðar Hauksson, Norbert Farkas, Þórður Arnar Þórðarson, Hjalti Már Hauksson, Dean Martin, Arnar Már Guðjónsson, Srdjan Tufegdzic, Andri Fannar Stefánsson, Guðmundur Óli Steingrímsson, David Disztl.
Gul spjöld: Baldur Bett (Val), Sigurbjörn Örn Hreiðarsson (Val), Ian Jeffs (Val), Ingi Freyr Hilmarsson (KA), Viktor Unnar Illugason (Val).
Dómari: Kristinn Jakobsson.
Áhorfendur: 592.



