Atli Eðvaldsson nýráðinn þjálfari Vals var ánægður með 3-2 sigur sinna manna á KA í framlengdum leik í 16-liða úrslitum VISA-bikars karla í kvöld.
„Það er alltaf tæpt þegar við vinnum bara með einu marki og því sætara fyrir vikið að skora á síðustu mínútunum. En KA liðið var bara æðislega gott og þetta er hörkulið sem gæti alveg sannað sig í úrvalsdeildinni,“ sagði Atli við Fótbolti.net eftir leikinn.
„Ég held að við höfum alveg átt sigurinn skilinn. Við vorum taugaveiklaðir í byrjun, menn eru stressaðir yfir öllu þessu sem að hefur gengið á. Í byrjun seinni hálfleiksins vorum við líka örlítið villtir en svo unnum við okkur inn í leikinn og ég held að í framlengingunni höfum við verið effektívari en þeir.“
Það sást á þeim sóknarþunga sem var kominn í leik Valsara undir restina að þeir voru ekkert æstir í að gera út um leikinn í vítaspyrnukeppni og segir Atli að það hafi verið fínt að klára þetta í venjulegum leiktíma.
„Maður þarf alltaf að reyna að klára þetta áður en til þess kemur en ef hún hefði komið, þá hefðum við tekið. Og ég var einmitt að hugsa, hverjir myndu taka vítin? Ég hafði ekki hugmynd um það,“ sagði Atli og bætti hann því við að það hefði verið smá áskorun að velja byrjunarliðið í kvöld, svona nýkominn inn í félagið.
„Það var náttúrulega erfitt þegar maður þekkir ekki leikmennina. Ég setti Bjarna aftur inn í vörnina og ég setti Ian Jeffs í hægri bakvörðinn sem hann hefur aldrei spilað áður. Ég held að við eigum eftir að sjá hörkubakvörð þegar líða tekur á tímabilið,“ bætti Atli við og sagðist hann vera stoltur af spilamennsku sinna manna.
„Heldur betur. Ungu strákarnir sem komu inn voru bara frábærir. Þetta eru allt góðir strákar en það er ofsamikið verkefni framundan. Við munum vinna hörðum höndum í því að létta á þessu og fá sjálfstraust í liðið og ég er viss um að það verður mikill stígandi alveg fram til loka tímabilsins.“
„Strákarnir fengu að kynnast mínum áherslum í dag en þegar ég verð búinn að vera með þá í nokkra daga eða nokkrar vikur, þá verður þetta betra.“
Aðspurður segist Atli nú vera kominn aftur heim, enda upplifði hann sína bestu tíma á knattspyrnuferlinum á Hlíðarenda.
„Auðvitað er ég kominn aftur heim. Hérna var ég uppalinn og ég átti alveg æðislegan tíma hérna. Ég hef oft sagt að ég ætti að vera löngu kominn hingað, en nú er ég kominn og ég er kominn til þess að sigra,“ sagði Atli að lokum við Fótbolti.net.



