Cristiano Ronaldo var kynntur sem nýjasti leikmaður Real Madrid í kvöld, en hann kemur til liðsins frá Manchester United.
Ronaldo er dýrasti leikmaður heims frá upphafi en Real Madrid borgaði hvorki meira né minna en áttatíu milljónir punda fyrir leikmanninn.
Ronaldo verður númer níu hjá Real, en leikmenn á borð við Di Stefano, Hugo Sanchez og Santillana hafa leikið með sama númer á bakinu.
Javier Saviola var síðasti leikmaðurinn sem að lék með níu á bakinu hjá Real, en hann er nú farinn til Benfica.


