Þór 1-0 Selfoss:
1-0 Hreinn Hringsson ('24, víti)
Í kvöld gerðu Þórsarar sér lítið fyrir og skelltu Selfyssingum, 1-0 með marki frá Hreini Hringssyni úr vítaspyrnu um miðbik fyrri hálfleiks. Selfyssingar voru þó sterkari aðilinn í kvöld en náðu ekki að koma knettinum í netið hjá baráttuglöðum Þórsurum og því fögnuðu heimamenn 1-0 sigri.
1-0 Hreinn Hringsson ('24, víti)
Í kvöld gerðu Þórsarar sér lítið fyrir og skelltu Selfyssingum, 1-0 með marki frá Hreini Hringssyni úr vítaspyrnu um miðbik fyrri hálfleiks. Selfyssingar voru þó sterkari aðilinn í kvöld en náðu ekki að koma knettinum í netið hjá baráttuglöðum Þórsurum og því fögnuðu heimamenn 1-0 sigri.
Gestirnir byrjuðu leikinn betur og eftir sex mínútna leik fengu gestirnir fyrsta færi leiksins er Stefán Ragnar Guðlaugsson tók langt innkast, knötturinn barst til Hjartar Júlíussonar sem skaut að marki Þórs en knötturinn fór beint á Björn Hákon sem hélt þó knettinum ekki. Knötturinn barst þá aftur til Hjartar en í þetta skipti fór skot hans hátt yfir markið.
Tveimur mínútum síðar fengu gestirnir aukaspyrnu, u.þ.b. 27 m. frá marki. Spyrnuna tók Guðmundur Þórarinsson, góð spyrna yfir vegginn en krafturinn var ekki nógu mikil og knötturinn fór beint á Björn Hakon. Eftir korters leik fengu síðan gestirnir aukaspyrnu, rétt við endamörkin.
Aukaspyrnuna tók Guðmundur Þórarinsson, góð spyrna átt að marki heimamanna, Hjörtur Júlíus stökk hæst allra og náði fínum skalla að marki Þórs en heppnin var ekki með honum og knötturinn fór rétt framhjá marki heimamanna.
Það dró svo til tíðinda um miðjan fyrri hálfleik. Þórsarar áttu þá fína skyndisókn sem endaði á að brotið var á Ármanni Pétri Ævarssyni innan teigs og Gunnar Jarl Jónsson dómari leiksins dæmdi vítaspyrnu. Hreinn Hringsson fór á punktinn og skoraði örugglega úr spyrnunni framhjá Jóhanni Ólafi Sigurðssyni markverði Selfoss.
Á 38. mínútu fékk Sævar Þór Gíslason ágætis færi eftir að hafa fengið knöttinn inn fyrir vörn Þórs, Sævar tók sér lítinn tíma og skaut ágætis skoti að marki en því miður fyrir gestina fór knötturinn beint á Björn Hákon. Selfyssingar voru sterkari aðilinn en nýttu sér það ekki og því fóru Þórsarar með 1-0 forystu er flautað var til hálfleiks.
Gestirnir voru sterkari aðilinn í síðari hálfleik og á 52. mínútu fengu gestirnir innkast. Gott innkast sem náði alla leið inn í teig og þar var mættur Henning Jónasson sem átti fínan skalla að marki heimamanna en knötturinn rétt yfir mark heimamanna.
Gestirnir voru meira með boltann en heimamenn ógnuðu þó gestunum með skyndisóknum. Heimamenn voru nærri búnir að bæta við öðru marki sínu úr einni slíkri þegar Ármann Pétur náði að renna knettinum á Ótto Hólm Reynisson sem var kominn í fínt skotfæri og skaut prýðis skoti en knötturinn fór rétt yfir mark gestanna.
Eftir því sem leið á síðari hálfleikinn náðu gestirnir að pressa á heimamenn. Á 75. mínútu fengu gestirnir aukaspyrnu við endamörkin, góð spyrna sem stefndi á fjærstöng, þar var Gunnlaugur Jónsson mættur og náði skalla að marki Þórs en knötturinn fór því miður í hliðarnetið og markspyrna dæmd. Það skall síðan hurð nær hælum á 91. mínútu þegar Sævar Þór fékk fína sendingu inn fyrir vörn Þórs, Sævar var á undan Hákoni í knöttirnn og náði að skjóta yfir Björn en því miður fyrir gestina fór knötturinn rétt yfir markið.
Gestirnir fengu síðan ágætis færi á lokaandartökum leiksins er þeir fengu aukaspyrnu á góðum stað. Góð spyrna sem olli varnarmönnum Þórs töluverðum vandræðum og það vantaði aðeins herslumun á að gestirnir næðu að pota knettinum í netið en heimamenn náðu að bjarga á elleftu stundu. Stuttu síðar flautaði hinn ágæti dómari leiksins, Gunnar Jarl leikinn af og því 1-0 sigur Þórs staðreynd.
Selfyssingar voru sterkari aðilinn í kvöld og hefðu átt að nýta sér það betur og þeir fengu alveg færin til að skora. Það má þó ekki taka af heimamönnum að þeir börðust vel allan leikinn og vildu klárlega sigurinn. Það má deila hvort sigur Þórsara hafi verið sanngjarn en þeir náðu að koma knettinum í netið og það er víst það sem telur í knattspyrnunni.




