,,Ég er mjög ánægður með þennan sigur. Mér fannst við spila vel, framan af leiknum, kannski fyrstu 20 mínúturnar vorum við að verjast en eftir það gekk þetta mjög vel. Við vissum vel fyrir leikinn að þeir eru sterkir í föstu leikatriðum," sagði Lárus Orri Sigurðsson þjálfari Þórs eftir 1-0 sigur á Selfoss í kvöld og hann vildi líka hrósa Gunnari Jarli Jónssyni dómara.
,,Hins vegar það sem situr eftir í kvöld er sigurinn en einnig frammistaða dómarans í kvöld. Mér fannst gaman að sjá þegar dómari kemur hingað, stjórnar leiknum vel, leyfir mönnum aðeins að rífa kjaft, fá aðeins að blása, tekur hart á þegar menn láta sig detta og reyna að fiska aukaspynur. Gaman að sjá þegar dómari stendur sig vel. Menn eru oft að tuða um hvað dómarar eru lélegir en þessi dómari var svo sannarlega góður.”
Lárus Orri var ekki síður ánægður með baráttu sinna manna í kvöld ,, Ég er mjög ánægður með baráttuna hjá strákunum. Eins og ég sagði þá voru við lengi í gang, sérstaklega fyrstu 20 mínúturnar. Við vissum að þær myndu dæla boltanum inn í, vissum að þeir myndu fá mikið af horn- og aukaspyrnum og við héldum einbeitingunni í föstu leikatriðunum allan tímann."
,,Selfyssingarnir eru náttúrlega stórir og sterkir. En þetta var gríðarlega mikilvægur sigur hjá okkur, vonandi fara strákarnir að sjá að við getum unnið hvaða lið hvenær sem er ef hausinn er í lagi. Hk leikurinn var mjög svekkjandi þar sem við mættum bara ekki til leiks en menn bættu það upp í kvöld og nú er bara að einbeita sér að næsta leik sem er Víkingur Ólafsvík."
Þórsliðið hefur unnið alla þrjá leiki sína á nýja Þórsvellinum og hafa smá saman verið að spila betur og sitja nú í 7. sætinu en hvernig líst Lárusi á framhaldið ,,Já, ég er bara spenntur fyrir framhaldinu. Nú er bara að klára mótið án þess að tapa leik," sagði Lárus Orri Sigurðsson þjálfari Þórs við fréttaritara í leikslok.



