Liverpool meðal félaga sem vilja Bowen - Juventus hefur áhuga á Jackson - Ederson orðaður við Man Utd
   þri 20. október 2009 13:04
Hafliði Breiðfjörð
Tómas Leifsson í Fram (Staðfest)
Tómas ásamt Brynjari Jóhannessyni framkvæmdastjóra Fram.
Tómas ásamt Brynjari Jóhannessyni framkvæmdastjóra Fram.
Mynd: Fram.is - Björn Þórisson
Fram tilkynnti rétt í þessu að Tómas Leifsson sé genginn til liðs við félagið frá Fjölni þar sem hann hefur verið undanfarin ár.

Tómas Leifsson hefur spilað allar fremstu stöðurnar hjá Fjölni undanfarin ár, báða kantana fremst á miðjunni og í framlínunni.

Hann er 24 ára gamall og fór upp alla yngri flokkana hjá FH en spilaði aðeins einn leik með meistaraflokki félagsins.

Hann var lánaður til Fjölnis sumarið 2005 en var hjá FH 2006. Frá 2007 hefur hann svo verið hjá Fjölni þar sem hann lék 86 leiki og skoraði 29 mörk.

Hann er annar leikmaðurinn sem gengur til liðs við Fram eftir að tímabilinu lauk, áður hafði Jón Gunnar Eysteinsson komið frá Keflavík í skiptum fyrir Paul McShane sem fór í hina áttina.
Slapp
banner