Íslenskur slúðurpakki: Ýmsar kjaftasögur í gangi
Rafn Andri er orðaður við FH og Breiðablik.
Þá er komið að þriðja slúðurpakkanum úr íslenska boltanum í haust. Í slúðurpakkanum kemur fram helsti orðrómurinn sem gengur í bænum en við ítrekum að þetta er bara orðrómur, ekkert er staðfest fyrr en frétt með fyrirsögn sem hefur orðið (Staðfest) innan sviga birtist hér á Fótbolta.net.
Félög mega nú ræða við þá leikmenn sem renna út á samningi á þessu ári og ýmsar kjaftasögur eru í gangi.
Slúðurpakkinn er einungis til að hafa gaman af og ef menn hafa ábendingar varðandi pakkann eða um slúður hafið þá samband á fotbolti@fotbolti.net.
Fyrsti íslenski slúðurpakkinn
Annar íslenski slúðurpakkinn
FH: Almarr Ormarsson leikmaður Fram hefur verið orðaður við FH-inga sem og Rafn Andri Haraldsson leikmaður Þróttar. Davíð Þór Viðarsson og Matthías Vilhjálmsson eru að skoða sig um erlendis en sá fyrrnefndi gæti æft með Roeselare á næstunni en þar spilar Bjarni bróðir hans. Þá er miðjumaðurinn ungi Hákon Atli Hallfreðsson liklega á förum.
KR: KR-ingar eru í leit að sóknarmanni og tveir fyrrum leikmenn félagsins sem nú eru í atvinnumennsku hafa verið nefndir til sögunnar. Garðar Jóhannsson gæti komið frá Fredrikstad og þá hefur sú saga verið uppi að Guðjón Baldvinsson komi aftur frá GAIS. Haukur Páll Sigurðsson, leikmaður Þróttar, hefur einnig verið orðaður við KR sem og Gunnar Heiðar Þorvaldsson framherji Esbjerg. Þá eru KR-ingar að skoða markverði og Ingvar Jónsson úr Njarðvík hefur verið orðaður við félagið.
Fylkir: Fylkismenn eru í leit að miðjumanni og hafa sýnt Atla Jóhannssyni og Finni Ólafssyni hjá HK áhuga. Þá reyndi félagið að fá Árna Freyr Guðnason en hann ákvað að vera áfram hjá ÍR. Möguleiki er á að Andrés Már Jóhannesson fari frá Fylki en hann er að skoða möguleika erlendis og einnig er líklegt að Pape Mamadou Faye fari erlendis en lið í Danmörku og Englandi eru spennt fyrir því að fá hann í sínar raðir.
Fram: Heyrst hefur að Þorvaldur Örlygsson muni hætta með Fram og taka við félagi í Noregi. Viktor Unnar Illugason, leikmaður Vals, er orðaður við Fram og Atli Jóhannsson er einnig talinn vera á ósklista félagsins. Ögmundur Kristinsson, varamarkvörður Fram, gæti farið á láni en félög í 1.deildinni hafa sýnt honum áhuga. Þá er líklegt að Grímur Björn Grímsson og Alexander Veigar Þórarinsson yfirgefi herbúðir Fram.
Breiðablik: Rafn Andri Haraldsson gæti komið til Blika frá Þrótti og Viktor Unnar Illugason er einnig orðaður við sitt gamla félag. Sigurbjörn Hreiðarsson miðjumaður Vals hefur verið orðaður við Breiðablik og þá hafa bikarmeistararnir ekki gefist upp í baráttunni um að fá Guðmund Pétursson frá KR. Kristinn Steindórsson mun væntanlega gera nýjan samning við Blika en Guðmann Þórisson er að skoða sig um.
Keflavík: Keflavík hefur áhuga á að fá Hafstein Rúnar Helgason frá Stjörnunni og Þórarinn Brynjar Kristjánsson gæti komið aftur til félagsins frá Grindavík.
Stjarnan: Stjörnumenn eru ennþá að reyna að fá Marel Jóhann Baldvinsson og Atla Jóhannsson og þá hefur Ingvar Jónsson, markvörður Njarðvíkur verið orðaður við liðið.
Valur: Marel Baldvinsson og Steinþór Gíslason munu líklega gera nýjan samning við Val þrátt fyrir áhuga frá öðrum félögum og sömu sögu er að segja af Ian Jeffs sem mun hafa samið við félagið til eins árs í fyrradag. Valur hefur sýnt Heiðari Geir Júlíussyni áhuga en óvissa ríkir um framtíð hans þar sem hann er að reyna að finna félag í Danmörku. Valsmenn vilja fá þriðja markvörðinn til að berjast um stöðuna við Kjartan Sturluson og Harald Björnsson. Amir Mehica úr Haukum hefur verið nefndur til sögunnar þar.
Grindavík: Grindvíkingar eru í leit að liðsstyrk og þeir gætu reynt að fá Andra Stein Birgisson aftur til félagsins. Einar og Rúnar Daníelssynir, bræður úr Víði Garði, eru einnig í viðræðum við Grindavík. Bogi Rafn Einarsson er samningslaus og óvíst er hvort hann verði áfram hjá Grindvíkingum og þá er Þórarinn Brynjar Kristjánsson líklega á förum.
ÍBV: Gunnar Heiðar Þorvaldsson, framherji Esbjerg, er sterklega orðaður við Eyjamenn sem ætla sér stóra hluti á næstu leiktíð. Atli Heimisson gæti einnig komið aftur til ÍBV frá Asker í Noregi og Atli Jóhannsson er einnig orðaður við endurkomu til ÍBV.
Selfoss: Selfoss hefur sýnt Andra Fannari Stefánssyni leikmanni KA áhuga en hann verður líklega áfram Norðan heiða næsta sumar. Amir Mehica, markvörður Hauka, er líka á óskalista Selfyssinga sem eru einnig farnir að leita erlendis að leikmönnum.
Haukar: Hákon Atli Hallfreðsson gæti komið til Hauka frá FH og sömu sögu er að segja af Eiríki Kúld sem var í láni hjá Haukum í sumar. Sigurður Helgi Harðarson, miðjumaður úr Fylki sem var í láni hjá Aftureldingu, gæti einnig farið til Hauka.
Fjölnir: Fjölnir mun væntanlega fá lánsmenn frá FH en samkomulag þess efnis er komið á milli félaganna. Fjölnir er einnig að skoða Guðmund Óla Steingrímsson leikmann KA.
Þróttur: Ingvar Þór Ólason gæti komið til Þróttar frá Fram. Hermann Aðalgeirsson, leikmaður Fjölnis, er einnig orðaður við Þróttara.
HK: Ásgrímur Albertsson, Finnur Ólafsson og Stefán Jóhann Eggertsson eru allir að hugsa sér til hreyfings. Ásgrímur gæti jafnvel lagt skóna á hilluna.
KA: Andri Fannar Stefánsson ætlar líklega að vera áfram hjá KA þrátt fyrir mikinn áhuga frá öðrum félögum. Hjalti Már Hauksson gæti aftur á móti verið á förum sem og Guðmundur Óli Steingrímsson.
Þór: Jóhann Þórhallsson, framherji Fylkis, og Andri Hjörvar Albertsson varnarmaður úr Fjarðabyggð eru orðaðir við Þór. Matthías Örn Friðriksson gæti yfirgefið herbúðir félagsins.
Leiknir R: Vinstri bakvörðurinn Steinarr Guðmundsson mun væntanlega leggja skóna á hilluna en hann hefur verið lykilmaður hjá liðinu undanfarin ár. Sigurður Helgi Harðarson er einnig orðaður við Leikni.
ÍR: Hákon Atli Hallfreðsson gæti komið til ÍR frá FH og Guðni Rúnar Helgason er einnig á óskalista Breiðhyltinga. Þá er Vilhjálmur Vilhjálmsson, miðjumaður Aftureldingar, líklega á leið til ÍR.
ÍA: Gömlu kempunar Hjörtur Júlíus Hjartarson, Jóhannes Harðarson og Stefán Þór Þórðarson eru orðaðir við sitt gamla félag ÍA. Ragnar Heimir Gunnarsson sem lék með Fjölni í sumar gæti einnig gengið í raðir Skagamanna.
Víkingur R.: Víkingur hefur áhuga á að fá Guðna Rúnar Helgason frá Stjörnunni og Dennis Danry frá Þrótti. Sigurbjörn Hreiðarsson leikmaður Vals hefur verið orðauður við Víking og þá gæti Hermann Aðalgeirsson komið til liðsins frá Fjölni sem og Guðmundur Óli Steingrímsson úr KA. Pétur Örn Svansson gæti einnig farið frá Víkingi eða hætt í fótbolta.
Grótta: Pétur Már Harðarson mun fara aftur til Gróttu frá KR. Pétur er uppalinn hjá Gróttu en hann var í láni hjá félaginu frá KR í sumar.
Njarðvík: Haraldur Axel Einarsson, leikmaður Víðis, á í viðræðum við Njarðvíkinga.
Víkingur Ólafsvík: Pólski varnarmaðurinn Tomasz Luba er orðaður við Víking en hann lék frábærlega með Reyni Sandgerði í sumar og var valinn í lið ársins.
Reynir Sandgerði: Óttar Steinn Magnússon gæti komið til Reynis frá Grindavík og þá er Rúnar Dór Daníelsson markvörður Víðis orðaður við Sandgerðinga. Hjörvar Hermannsson mun hins vegar líklega yfirgefa Reyni og fara í félag í fyrstu deildinni.
Völsungur: Húsvíkingar munu fá varnarmanninn Aron Bjarka Jósepsson aftur frá KR. Aron Bjarki var í láni hjá Völsungi í sumar frá KR en hann er uppalinn á Húsavík. Kristján Gunnar Óskarsson ætlar hins vegar líklega að fara frá Völsungi og finna sér félag á höfuðborgarsvæðinu.
Berserkir: Sumarliði Árnason, fyrrum markamaskína Víkings, gæti tekið fram skóna og leikið með Berserkjum og þá hefur Þórhallur Hinriksson einnig sést á æfingum liðsins.