Átta leikmenn úr Íslandsmeistaraliði 3.flokks Keflavíkur frá síðasta sumri skrifuðu undir tveggja ára samning við félagið í vikunni.
,,Allir eru þeir gríðarlega efnilegir og miklar vonir bundnar við þá, knattspyrnudeildin hefði getað samið við fleiri drengi úr þessum frábæra hóp leikmanna 3 flokks sem unnu bæði Íslandsmeistaratiltilinn og bikarinn en ákveðið var að taka þessa leikmenn í þetta skipti," segir í tilkynningu frá Keflavík.
Leikmennirnir heita: Arnór Ingvi Traustason, Aron Ingi Valtýsson, Ásgrímur Rúnarsson, Bergsteinn Magnússon. Davíð Guðlaugsson, Eyþór Ingi Einarsson, Lukas Malesa og Theodór Guðni Halldórsson.
Með þeim á myndinni eru Zoran Daníel Ljubicic þjálfari, Smári Helgason formaður unglingaráðs og Þorsteinn Magnússon formaður knattspyrnudeildarinnar.

