Heimild:  
fim 12.nóv 2009 08:08 Magnús Már Einarsson,
Leikmaður Rubin Kazan skírði dóttur sína Barcelona
Sergey Semak.
Mynd: NordicPhotos
Rússneska félagið Rubin Kazan sigraði Barcelona óvænt 2-1 á útivelli í Meistaradeild Evrópu í síðasta mánuði.

Sergey Semak, fyrirliði Rubin, ætlar aldrei að gleyma þessum sigri en hann hefur ákveðið að skíra nýfædda dóttur sína Barcelona.

,,Þetta er leið til þess að ég verði viss um að gleyma aldrei þessum eftirminnilega sigri. Að auki er þetta dálítill virðingarvottur til fótboltans sem að þeir spila," sagði Semak.

Auk Barcelona þá á Semak þrjú önnur börn en þau heita Maja, Semjon og Iwan.

Nýjustu fréttirnar