Heimild:  
Peter Lovenkrands.
Mynd: NordicPhotos
fim 12.nóv 2009 08:35 Hafliði Breiðfjörð,
Lovenkrands segist hafa misst af leikjum útaf fjölskyldumálum
Peter Lovenkrands framherji Newcastle segir að hann hafi misst af leikjum með liðinu vegna fjölskyldumála en Daninn hafði samið við félagið á lokadegi félagaskiptagluggans til þriggja ára.

Hann var einnig hjá Newcastle á síðasta hluta síðustu leiktíðar en hafið hafnað samningstilboði áður en hann ákvað að semja í ágúst.

Hann hefur aðeins þrisvar verið í byrjunarliði hjá liðinu á tíambilinu en segir að persónuleg vandamál séu ástæða þess.

,,Maður vill auðvitað spila fleiri leiki, en ég hef haft nokkur persónuleg fjölskylduvandamál upp á síðkastið. Og ég hef misst af nokkrum leikjum vegna þessa," sagði Lovenkrands við Onside.

,,En núna ætti allt að vera komið í lag svo ég get einbeitt mér að fótbolta að nýju. Ég vona að þetta verði til þess að ég fái að byrja fleiri leiki, en ég mun taka því rólega og sjá hvað gerist."
athugasemdir
Nýjustu fréttirnar