Savinho færist nær Spurs - Inacio á lista Liverpool - Man Utd heldur í vonina um Anderson
   fim 12. nóvember 2009 09:38
Hafliði Breiðfjörð
Heimild: AFP 
Bruce Arena er þjálfari ársins í MLS deildinni
Bruce Arena þjálfari LA Galaxy sem David Beckham leikur með var í gær valinn þjálfari ársins í bandarísku MLS deildinni eftir að hafa komið liðinu í umspil í fyrsta sinn síðan árið 2005.

Arena er á sinni annarri leiktíð sem þjálfari LA Galaxy en undir hans stjórn snarsneri liðið gengi sínu við á tímabilinu. Liðið hafði endað í botnsætinu og liðið fékk á sig 62 mörk sem var það mesta í deildinni.

Því einbeitti hann sér að því að styrkja varnarleikinn með nýjum leikmönnum og markverði, Donovan Ricketts sem er 32 ára gamall landsliðsmaður frá Jamaíka. Með þeirra hjálp fékk liðið aðeins 31 mark á sig á þessari leiktíð.

Tímabilið byrjaði rólega hjá liðinu en eftir að David Beckham sneri aftur úr láni hjá AC Milan í sumar fór liðið að vinna leiki.
Slapp
banner
banner
banner