Heimild:  
fim 12.nóv 2009 10:18 Alexander Freyr Einarsson,
Beckham: Ekkert vesen með enska landsliðið
David Beckham.
Mynd: NordicPhotos
David Beckham leikmaður Los Angeles Galaxy er fullviss um að ákvörðun hans um að velja félagsliðið fram yfir landsliðið muni ekki hafa áhrif á ákvarðanir Fabio Capello landsliðsþjálfara.

Beckham mun ekki taka þátt í landsleik Englands og Brasilíu um helgina til að hjálpa Galaxy í úrslitaleik Vesturedeildarinnar gegn Houston Dynamo. Segir hann að Capello kippi sér ekkert upp við þessa ákvörðun.

„Þeir vissu að við erum í úrslitakeppninni og þeir bjuggust við þessu," sagði Beckham.

„Þetta er ekkert vandamál. Þeir hafa sent mér heillaóskir fyrir leikinn."

Beckham, sem er einungis 10 leikjum frá því að bæta leikjamet Peter Shilton sem lék 125 leiki fyrir England, segist enn vera ákveðinn í því að spila fyrir landsliðið.

„Áhersluatriði mitt númer eitt er að vera í hverjum einasta hóp. Þegar allt er komið til alls er ég kominn með 115 leiki og ef ég næ öðrum markmiðum er það fínt, en það er ekki það mikilvægasta."

„Ég er ekki að telja niður fyrir hvern leik. Auðvitað myndi ég vilja ná Peter Shilton en það mikilvægasta er samt sem áður landsliðið og þannig hefur það alltaf verið."

„Það skiptir engu máli hversu marga leiki ég spila, heldur hversu langt England kemst á HM. Ég er ánægður þar sem ég er með enska landsliðinu."

„Allir vita hversu stoltur ég er af því að hafa spilað jafn marga leiki og raun ber vitni en maður getur ekki haft áhyggjur af þessum hlutum. Maður verður bara að gera sitt besta og standa sig vel."

Nýjustu fréttirnar