Heimild:  
Powerade
Fer Pavlyuchenko til Liverpool?
Mynd: NordicPhotos
fim 12.nóv 2009 10:36 Hafliði Breiðfjörð,
Powerade slúðrið: Liverpool vill fá Pavlyuchenko í janúar
Þá er komið að daglegum slúðurpakka dagsins í boði Powerade en þar er búið að taka saman helsta slúðrið í ensku götublöðunum.

Rafael Benítez knattspyrnustjóri Liverpool ætlar að reyna að fá Roman Pavlyuchenko framherja Tottenham á láni í janúar. (Daily Mirror)

Stephen Ireland miðjumaður Manchester City segir að Robinho vilji vera áfram hjá félaginu þrátt fyrir áhuga Barcelona. (Daily Mirror)

Celtic í Skotlandi er á eftir Leon Best framherja Coventry. (Daily Mirror)

Steve Bruce stjóri Sunderland hefur fengið leyfi til að bjóða 12 milljónir punda í Adam Johnson kantmann Middlesbrough og Maynor Figueroa varnarmann Wigan. (The Sun)

Liverpoool hefur fengið þau skilaboð að framherjinn Carlton Cole kosti félagið 20 milljónir punda frá West Ham. (The Sun)

Arsenal hefur áhuga á ísraelska kantmanninum Gai Assulin hjá Barcelona. (The Sun)

Arsenal hefur áhuga á Victor Moses framherja Crystal Palace en kaupverðið er 5 milljónir punda. (Daily Star)

Sol Campbell mun fara til Newcastle United í janúar. (The Sun)

Everton er á eftir Javier Garcia miðjumanni Benfica sem er metinn á 13 milljónir punda. (The Sun)

Southampton ætlar að bjóða 500 þúsund pund í John Rooney framherja Macclesfield sem er yngri bróðir Wayne Rooney. (The Sun)

Donal McDermot kantmaður Manchester City er á óskalista Scunthorpe. (The Sun)

Nani kantmaður Manchester United segir að Sir Alex Ferguson stjóri liðsins hafi farið illa með feril sinn. (The Sun)

Roy Hodgson stjóra Fulham verður boðið að stýra liði Bretlands á Ólympíuleikunum 2012 í London. (Daily Express)
athugasemdir
Nýjustu fréttirnar