Savinho færist nær Spurs - Inacio á lista Liverpool - Man Utd heldur í vonina um Anderson
   lau 21. nóvember 2009 06:00
Hafliði Breiðfjörð
Þrjár frá Álftanesi til æfinga hjá Watford Ladies
 Bergrún, Júlíana, Elín og Ásgrímur.
Bergrún, Júlíana, Elín og Ásgrímur.
Mynd: Aðsend
Á morgun, sunnudag heldur hópur frá Álftanesi, þrír leikmenn og þjálfari, til Watford þar sem dvalið verður í viku við æfingar. Um er að ræða þrjár stelpur úr 3. og 2. flokk félagsins.

Þetta eru Bergrún Jónasdóttir, Elín Jóhannsdóttir og Júlíana Sigurgeirsdóttir. Með þeim í för verður Ásgrímur Einarsson núverandi þjálfari meistaraflokks kvenna hjá Aftureldingu en hann þjálfaði áður hjá Álftanesi og sá um að skipuleggja ferðina. Verður þetta því síðasta verk hans í bili fyrir Álftanes.

Álftanes er í samstarfi við Watford bæði í karla- og kvennaboltanum. Í fyrra fóru tveir þjálfarar félagsins, Ásgrímur og Birgir Jónasson, til Watford og kynntu sér akademíu félagsins.

Nú er hins vegar komið að því að fara með iðkendur til æfinga og varð fyrir valinu að heimsækja kvennalið félagsins og styrkja það samband sem þar hefur skapast. Æft verður með aðalliði Watford sem leikur í efstu deild á Englandi og einnig með u-16 ára liðinu. Hópurnn heldur utan á sunnudag eins og áður segir og verður í viku.

Hópurinn ætlar að halda úti dagbók á meðan á ferðinni stendur og er slóðin á hana http://alftaneskonur.wordpress.com/heimsokn-til-watford/
Slapp
banner
banner