Portsmouth kallar markvörð til baka úr láni frá Ipswich
Portsmouth hefur kallað markvörðinn Asmir Begovic til baka úr láni frá Ipswich Town.
Þessi 22 ára gamli Bosníumaður hefur staðið sig vel hjá Ipswich en hann hefur leikið með liðinu undanfarnar sex vikur.
Begovic átti að vera í láni í þrjá mánuði en Portsmouth hefur kallað hann til baka og því mun Richard Wright væntanlega fara í markið hjá Ipswich.
David James, markvörður Portsmouth, er meiddur á kálfa og hann gat ekki leikið gegn Stoke í gær.
Jamie Ashdown stóð á milli stangana þar en nú er Begovic líka kominn til baka.