Rashford verður ekki hjá Barcelona á næsta tímabili - Man Utd kemur mikið við sögu í slúðurpakka dagsins
   mán 23. nóvember 2009 18:06
Magnús Már Einarsson
Heimild: Sporting Life 
Owen dreymir um að vinna úrvalsdeildina með Man Utd
Michael Owen, framherji Manchester United, vonast til að ná að vinna ensku úrvalsdeildina í fyrsta skipti á ferlinum á þessu tímabili.

Owen lék áður með Liverpool og síðan Real Madrid og Newcastle áður en hann gekk í raðir Manchester United í sumar.

,,Þetta er eitthvað sem ég hugsa mikið um," sagði hinn 29 ára gamli Owen.

,,Þegar ég var fyrst beðinn um að skrifa undir hjá Manchester United þá fór ég að hugsa um hvernig það væri að fara í nýtt félag, hitta nýtt starfsfólk og nýja leikmenn."

,,Að spila undir stjórn Sir Alex Ferguson heillaði og ég hugsaði um hversu gott að væri að hlaupa út á Old Trafford í hverri viku og spila fyrir framan svona mikið af fólki."

,,Það sem skipti mestu máli fyrir mig var að vinna til verðlauna. Manchester United er frábært félag og ég myndi gjarnan vilja vera hluti af liði sem vinnur deildina."

Slapp
banner