Heimild:  
mán 23.nóv 2009 19:38 Davíð Örn Atlason,
Kakuta ánægður með fyrsta leikinn fyrir Chelsea
Mynd: NordicPhotos
Gael Kakuta spilaði sinn fyrsta leik fyrir aðallið Chelsea um helgina er liðið lagði Wolves 4-0. Kakuta var í fjögurra mánaða banni vegna félagsskipta hans til Chelsea frá Lens fyrir tveimur árum en Chelsea fór einnig í félagsskiptabann vegna Kakuta.

,,Ég hef ekki getað spilað vegna bannsins svo ég hef lagt meira á mig á æfingasvæðinu á hverjum degi og mér líður vel," sagði Kakuta.

,,Þetta hefur verið svolítið eins og undirbúningstímabilið. Þegar strákarnir eru búnir á æfingu þá hef ég bara haldið áfram."

,,Ég hef beðið lengi eftir fyrsta leiknum og ég er mjög ánægður með að hafa spilað. Ég var alls ekki stressaður, þegar ég spila þá reyni ég bara að gera mitt besta."

Nýjustu fréttirnar