Sepp Blatter hefur kallað til stjórnarfundar hjá Fifa.
Mynd: NordicPhotos
mán 23.nóv 2009 18:38 Alexander Freyr Einarsson,
Fifa kallar til stjórnarfundar vegna atvika í undankeppni HM
Alþjóðaknattspyrnusambandið Fifa hefur kallað til stjórnarfundar vegna atvika sem áttu sér stað í undankeppni HM, dómgæslu og til að ræða um mögulegar hagræðingar úrslita.

Munu helstu stjórnarmenn Fifa mæta á fundinn í Cape Town, Suður Afríku, þann 2. desember. Mun Sepp Blatter forseti einnig vilja ræða þær hundruðir handtaka í kringum Evrópu vegna spillingar í knattspyrnunni.

Í yfirlýsingu frá Fifa sagði: „Vegna nýlegra atvika í knattspyrnuheiminum, þá sérstaklega í undankeppni HM 2010 í Suður-Afríku og vegna undarlegra atvika á markaði veðbanka, hefur forseti Fifa ákveðið að kalla til stjórnarfundar.“

„Mun fundur þessi eiga sér stað í Cape Town þann 2. desember 2009.“


Eins og frægt er orðið var Írland slegið út úr keppni af Frakklandi eftir skýrlega ólöglegt mark þar sem hendin á Thierry Henry hjálpaði til við að leggja upp mark William Gallas sem tryggði 2-1 samanlagðan sigur Frakka.

Samkvæmt Sky fréttastöðinni hefur Fifa þó ekki skipt um skoðun síðan þeir neituðu Írlandi um endurupptöku leiksins. Talið er að þeir muni einnig ræða um ofbeldið sem átti sér stað utan vallar í leik Alsír og Egyptalands.
athugasemdir
Nýjustu fréttirnar