Adebayor hefur ekki áhyggjur af markaleysi Tevez
Emmanuel Adebayor framherji Manchester City segist ekki hafa áhyggjur þó að liðsfélagi sinn Carlos Tevez hafi ekki skorað sem skyldi það sem af er tímabilinu.
Argentínumaðurinn hefur ekki náð að standa sig nægilega vel það sem af er ári og hefur hann ekki skorað í deildinni síðan í september. Adebayor skoraði sjálfur sitt fimmta mark í 2-2 jafntefli liðsins gegn Liverpool en hann segir að Tevez sé að standa sig og að hann leggi sitt af mörkum þrátt fyrir að hann sé ekki að skora.
„Við vitum öll hversu góður Carlos er. Hann var 100 prósent fagmaður þegar hann kom hingað og hann berst fyrir liðið í vörninni, heldur boltanum vel og gerir mér lífið einfaldara,“ sagði Adebayor við opinbera heimasíðu City.
„Fólk spyr sig kannski af hverju hann hefur ekki skorað mörg mörk, en hann er einn sá besti.“
„Hann hefur ástríðuna og við vitum hversu hæfileikaríkur leikmaður hann er, hann þarf bara aðeins meira sjálfstraust til að byrja að skora.“