Rashford verður ekki hjá Barcelona á næsta tímabili - Man Utd kemur mikið við sögu í slúðurpakka dagsins
   mán 23. nóvember 2009 22:00
Magnús Már Einarsson
Championship: Newcastle aftur á toppinn eftir sigur á Preston
Preston 0 - 1 Newcastle
0-1 Kevin Nolan ('74)

Newcastle endurheimti í kvöld toppsætið í Championship deildinni með því að leggja Preston 1-0 á útivelli.

Kevin Nolan skoraði eina mark leiksins á 74.mínútu en þetta var sjöunda mark hans í síðustu tíu leikjum og áttunda mark hans á tímabilinu.

Preston hafði verið betri aðilinn í leiknum fram að markinu en Steven Harper hafði meðal annars varið tvívegis vel frá Neill Mellor.

Newcastle er eftir sigurinn með 36 stig á toppnum, tveimur stigum á undan WBA en Preston er í tólfta sætinu.
Slapp
banner