Kristinn Steindórsson, framherji úr Breiðablik, verður næstu daga við æfingar hjá Werder Bremen og spilar einn æfingaleik með U-23 ára liði félagsins.
,,Þetta kemur til þar sem við höfum verið að kynna okkar leikmenn í Þýskalandi," sagði Halldór Birgir Bergþórsson umboðsmaður hjá Sportic við Fótbolta.net.
,,Þetta kemur til þar sem við höfum verið að kynna okkar leikmenn í Þýskalandi," sagði Halldór Birgir Bergþórsson umboðsmaður hjá Sportic við Fótbolta.net.
,,Þetta er fyrst og fremst skemmtileg reynsla og heiður fyrir Kristinn að vera boðið til æfinga hjá einu stærsta liði í Evrópu. Ef eitthvað meira gerist þá er það bara bónus."
Kristinn varð bikarmeistari með Breiðablik á síðustu leiktíð en hann var fastamaður hjá liðinu. Kristinn skoraði einnig átta mörk í 22 leikjum í Pepsi-deildinni.
Þessi 19 ára gamli leikmaður skrifaði fyrr í vetur undir nýjan tveggja ára samning við Breiðablik.
Athugasemdir