Það hefur gengið mikið á hjá Hermanni Hreiðarssyni og félögum í Portsmouth á þessu tímabili. Í vikunni urðu eigendaskipti hjá félaginu í þriðja sinn á tímabilinu en leikmenn hafa nokkrum sinnum fengið laun sín greidd of seint vegna fjárhagsvandræða félagsins.
Að auki er Portsmouth í slæmri stöðu á botni ensku úrvalsdeildarinnar en Hermann fór yfir málin í viðtali í útvarpsþættinum Fótbolti.net á X-inu 97,7 í gær.
,,Ég held að þetta sé mjög stórt skref í rétta átt að losna við síðustu eigendur. Það var gjörsamlega óhæft að starfa með þeim," sagði Hermann.
,,Þeir gáfu ekkert frá sér, svöruðu engum spurningum, voru ekki með neitt plan og störfuðu ekki með neinum. Það er mjög gott að vera lausir við þá."
,,Þessir nýju eigendur ætla að stilla af skútuna og selja klúbbinn síðan áfram. Ég hef heyrt aðeins í stjórnarmönnum og þeim líst strax betur á stöðu klúbbsins."
Kaffivélin tekin og vefsíðunni lokað:
Leikmenn og starfsfólk Portsmouth hafa þurft að bíða nokkrum sinnum eftir að fá laun sín borguð og fjárhagsvandræði félagsins hafa teygt anga sína víðar.
,,Þetta var orðið skammarlegt. Það á ekkert að vera rekið svona. Það kom fólk að sækja kaffivélina inn á kaffistofu og það var lokað á vefsíðuna hjá okkur út af einhverjum hundruðum punda eða eitthvað, ég veit ekki hvað það kostar. Þegar klúbburinn er rekinn á tugum milljónum punda þá er þetta skammarlegt."
,,Fólk sér hvernig ástandið er og það er ekkert annað hægt en hrista hausinn og vonast til að næsti eigandi stappi stálinu í klúbbinn þannig að allir geti farið að einbeita sér að sínu starfi, við að einbeita okkur að fótbolta og þeir að rétta skútuna af."
Portsmouth er sem stendur með 16 stig á botni ensku úrvalsdeildarinnar, sjö stigum frá öruggu sæti en Hermann telur að það búi meira í liðinu.
,,Mér finnst það. Ég er búinn að taka þátt í mörgum af þessum leijkum og horfa á marga og við höfum ekki oft verið yfirspilaðir. Það hefur tvisvar gerst gegn Arsenal en þess fyrir utan höfum við nánast aldrei verið yfirspilaðir. Við höfum fengið ótal sénsa en við höfum ekki nýtt færin nógu vel."
,,Við erum með ágætis mannskap og við höfum trú á því sem við erum að gera. Þó að það hafi ekki gengið að hala inn stig þá höfum við spilað ágætlega og skapað færi."
,,Við erum líka raunsæir og sjáum að við erum langneðstir þannig að við höfum engu að tapa. Við höfum trú á að við getum komið mörgum á óvart."
Grant grínast mikið:
Avram Grant tók við stjórastöðunni hjá Portsmouth af Paul Hart fyrr á tímabilinu og Hermann er ánægður með hans störf.
,,Hann fer rosalega vel í mannskapinn. Hann er þvílíkur reynslubolti og er með skýr og góð skilaboð. Mönnum finnst gott að vinna með honum."
Grant er ekkert að rifna úr gleði í leikjum en Hermann segir að Ísraelinn sé hins vegar hress þrátt fyrir það.
,,Já það er nefnilega það fyndna. Hann lítur út eins og hann sé að drepast úr leiðindum en hann talar mikið í léttu gríni. Meira segja þegar að hann er að gagnrýna menn þá á hann það til að gagnrýna menn með léttum bröndurum," sagði Hermann í viðtalinu í gær.
Smelltu hér til að hlusta á þáttinn.

