,,Það koma svona sveiflur, einn daginn langaði mig að hætta og einn daginn langaði mig að halda áfram.''
Ingvar Ólason gekk um helgina í raðir Þróttar frá Fram en hjá Þrótti verður hann spilandi aðstoðarþjálfari og skrifaði undir eins árs samning þess efnis á laugardag. Ingvar settist niður með Fótbolta.net og ræddi félagaskiptin.
Lá það alltaf beint við að þú færir í Þrótt eftir að það var ljóst að þú myndir hætta í Fram?
Það var svona efst á lista allavega. Ég hef verið að huga að því að hætta síðustu ár og tek alltaf eitt ár í einu. En eins og þetta gekk síðasta sumar fannst mér ég eiga inni. Fyrst mér bauðst ekki að vera áfram hjá Fram var Þróttur frá byrjun efst á lista. Ég ýtti öllu öðru frá mér nema þessu.
Fékkstu margar fyrirspurnir?
Já, já. En það var allt í 1. deild og neðar. Það kom því ekkert annað til greina nema Þróttur. Það var alltaf planið í gamla daga að enda hérna, en svo var ég búinn að vera svo lengi í Fram að það var komið smá Fram hjarta. Ég bjóst við því að ég myndi enda þar, en aðstæður eru fljótar að breytast svo þetta er bara draumur í dós.
Þú hefur alltaf haft hjarta með Þrótti líka er það ekki?
Já, já, alveg hiklaust. Þegar ég fór frá Þrótti voru þeir í 1. deild og mig langaði í efstu deild en hér hef ég tilfinningar.
Þekkirðu vel til hjá Þrótti í dag?
Ég spilaði með Palla (Páll Einarsson þjálfari) og svo eru nokkrir strákar sem ég spilaði með áður en ég fór. Svo þekki ég líka gríðarlega marga í kringum þetta. Við erum að klára þetta svolítið seint núna að ég komi aftur en ég fékk að gera þetta alveg á mínum hraða. Það koma svona sveiflur, einn daginn langaði mig að hætta og einn daginn langaði mig að halda áfram. Ég ákvað að taka mér góðan tíma í þetta og nú langar mig að halda áfram og þess vegna erum við hérna í dag.
Svo ertu ráðinn spilandi aðstoðarþjálfari. Hefur alltaf blundað í þér að fara út í þjálfun líka?
Já, það er búið að vera síðustu ár og mig langaði að athuga hvort ég hefði áhuga á þessu. Það var bara tilvalið að nýta það núna, og vera hliðina á góðum manni í því. Við byrjum á að taka þetta ár og þá sé ég hvort þetta sé eitthvað fyrir mig.
Það hefur alveg sýnt sig í þessum tveimur verkefnum sem Palli hefur tekið að sér í þjálfun að hann hefur þetta alveg í sér?
Já já, það er engin spurning. En þessi skipti mín hingað er aðallega sem leikmaður. Hitt er bara auka og ég mun sjá hvað ég get aðstoðað Palla í. En ég er ekkert að fara að skipta mér að liðinu, það er ljóst að hann er með þetta verkefni.
Ertu ánægður með viðskilnaðinn við Fram?
Jájá, þeir stóðu alveg við sitt. Þetta er búinn að vera frábær tími þarna. Sérstaklega síðustu tvö ár. Það var gaman þegar loksins gekk vel eftir að hafa verið búinn að vera lengi í hinu. Ég fer alveg sáttur þaðan, en það kom mér á óvart að hafa ekki fengið að klára eitthvað meira. Það þarf alltaf að gera breytingar og maður virðir það.
En þú getur alveg litið til baka til tímans hjá Fram og litið á að þú hættir á toppnum þar. Þó úrslitin hafi ekki verið góð í bikarúrslitaleiknum áttirðu til dæmis frábæran leik?
Jájá, þetta gekk vel og ætli ég hafi ekki verið hársbreidd frá því að hætta í fótbolta. Ef við hefðum unnið dolluna þá hefði ég ekki geta hætt á betri tíma og hætt alveg á toppnum.
Hvaða væntingar gerirðu hjá Þrótti?
Hiklaust að fara upp á þessu ári. Það er bara krafa. Ég held að það sé alveg hópurinn í það.
Það er svolítið skemmtilegt að gerast hérna núna þegar gamlir Þróttarar eru að snúa heim?
Já, og ég held að ef við förum upp sé alveg hægt að týna fleiri heim. Ég er ekki alveg búinn að sjá 2. flokkinn eða neitt í kringum þetta en á þessum tímum er mikilvægt að virkja þessa stráka og reyna að gera þá aðeins betri. Það verða svolítið breyttir tímar næstu ár þegar það er ekki hægt að versla bara endalaust.
En eru ekki breyttar kröfur hjá leikmönnum þá, það eru ekki sömu peningakröfur og voru?
Ég held að það sé ekkert í þeirra höndum, þetta er bara ekkert í boði. En ætli þeir fari ekki að horfa frekar erlendis en að skipta hér á milli. Ég held að það skipti engu hvort þú sért í Þrótti eða FH. Ef þú ert að spila vel þá ertu skoðaður.



