,,Ég held að af einhverju leyti höfum við fundið fyrri því að við höfum verið með of margar úr ýmsum áttum. Því hefur ekki náðst sú liðsheild sem oft þarf.''
,,Við höfum misst leikmenn sem hafa verið uppaldir og finnst stundum sem það hafi verið of margir ekki hjá okkur sem við höfum alið upp.''
Þróttur tilkynnti á laugardag að Ingvar Ólason sé genginn í raðir félagsins frá Fram. Félagið hefur verið að styrkja liðið nokkuð eftir fallið niður í 1. deild í haust og þá svolítið leitað til leikmanna sem hafa verið hjá þeim áður eins og Ingvar sem lék þar síðast 1999.
Við ræddum við Finnboga Hilmarsson formann knattspyrnudeildar Þróttar efitr undirskriftina á laugardag.
Við ræddum við Finnboga Hilmarsson formann knattspyrnudeildar Þróttar efitr undirskriftina á laugardag.
Nú er Ingvar Ólason kominn í Þrótt og þið hafið verið að sækja svolítið gamla Þróttara heim. Er þetta stefna hjá ykkur eða lendir þetta bara svona?
Ég held að þetta sé frekar meðvitað. Við höfum misst leikmenn sem hafa verið uppaldir og finnst stundum sem það hafi verið of margir ekki hjá okkur sem við höfum alið upp.
Þegar Palli (Páll Einarsson þjálfari) sem er einn af þeim sem fór, kom heim, var ákveðið að setjast niður og sjá hverja við gætum fengið til baka sem virklega myndu styrkja þetta lið. Ingvar er einn af þeim, það er klárt.
Eins og aðrir sem hafa verið að koma?
Já, til dæmis Dóri (Halldór Hilmisson) sem er kominn aftur og við lítum á sem Þróttara og Elli (Erlingur Jack Guðmundsson) og einhverjir fleiri. Við finnum það líka bara að það er mikil samheldni í þessum hóp, þeir þekkjast þessir strákar og hafa allir spilað saman áður. Þetta lítur bara vel út.
Gæti það orðið ókostur ef menn eru of miklir félagar?
Nei, ég held ekki. Ég held að af einhverju leyti höfum við fundið fyrri því að við höfum verið með of margar úr ýmsum áttum. Því hefur ekki náðst sú liðsheild sem oft þarf, ég er þó ekki að segja að hún hafi ekki verið, en ég sé á þessum strákum núna að þetta virkar vel.
Eru fleiri á leiðinni?
Það er ómögulegt að segja, það gæti eitthvað bæst við en það kemur þá bara í ljós.
Eru það þá Þróttarar?
Alveg eins, að sjálfsögðu allir sem styrkja liðið. En markmiðið hefur ekkert breyst og það er að fara með liðið upp aftur. Það eru einhverjir Þróttarar annars staðar en ekkert sem við erum að vinna sérstaklega í.
Helst hefðum við viljað fá Hauk (Pál Sigurðsson sem fór í Val) og Rabba (Rafn Andra Haraldsson sem fór í Breiðablik) aftur. Það er kannski full snemmt að vinna í því. Nei það er reyndar bara grín. Auðvitað eru mikil vonbrigði að þeir hafi farið og félagið fann og finnur fyrir því.
En við vonum að þeir komi aftur síðar. Maður verður samt að skilja þeirra afstöðu, þetta eru metnaðarfullir strákar, þó félagið hafi verið tilbúið að gera allt fyrir þá til að halda þeim áfram.
Þið réðuð Pál Einarsson sem þjálfara liðsins í haust en þegar hann hafði hætt hjá Þrótti á sínum tíma skildi hann ekkert vel eftir deilur við Atla Eðvaldsson þáverandi þjálfara. Var ekkert erfitt að telja hann á að koma aftur?
Nei, ég held að það hafi alltaf legið við að hann kæmi aftur. Þetta mál sem var allt of mikið blásið upp var fyrst og fremst milli tveggja persóna. Ekki milli félags og persóna. Palla var aldrei illa við félagið, eða félaginu við Palla.
Svo þegar við fórum að velta þessum málum fyrir okkur í haust var hann langefstu á blaði. Enda hafði hann náð fínum árangri fyrir norðan (með Hvöt) og stóð sig vel sem aðstoðarþjálfari Óla hjá Fylki.
Hann var líka fyrirliði okkar í mörg ár og var vinsæll og góður drengur. Það örlaði ekki á neinum vandkvæðum að hann kæmi aftur til okkar.
Hjálpar ekki líka svolítið til þegar þið eruð að styrkja liðið að hafa hann, hann er vinsæll er það ekki?
Jú, hann hefur líka unnið mjög vel í því sjálfur. Hann er mikið að leita að ákveðnum karakterum og ákveðnum mönnum í ákveðnar stöður. Þetta er alveg út úr pælt hjá honum.



