Heimild: Desporto
Orðið keppikefli hjá þjóðum að byrja undankeppnina á Íslandi
Biðin eftir Ronaldo og félögum gæti orðið í styttra lagi fyrir íslenska knattspyrnuunenndur ef ósk Carlosar Queiroz, landsliðsþjálfara Portúgals, gengur eftir en hann vill hefja leik í undankeppni EM 2012 hér á landi næsta september.
Queiroz segir í samtali við íþróttablaðið Desporto að þar sem Ísland sé norðlægasta landið í riðlinum sé eftirsóknarverðast að spila hér á landi í september mánuði, verði það á annað borð raunin að Portúgal þurfi að ferðast til Íslands á þessu ári. Einnig er gert ráð fyrir leikdögum í október og nóvember á þessu ári og má því gera því skóna að Queiroz hræðist kuldabola sem hefur stundum hreiðrað um sig hér um það leyti.
Nokkrir leikdagar verða að sumri til á næsta ári og því er ekki ólíklegt að Portúgal óski þess að fá að koma hingað á þeim árstíma náist ekki að semja um heimsókn þeirra hingað til lands í haust.
Eins og Fótbolti.net greindi frá í kvöld hefur Morten Olsen, landsliðseinvaldur Dana, óskað eftir því að spila fyrsta leikinn í undankeppninni á Laugardalsvellinum næsta haust og því ljóst að íslenska sendinefndin sem sér um að ákvarða leikdaga landsliðsins hefur úr nokkrum óskum að moða nú þegar.



