Heimild: AP
Robinho skoraði sigurmarkið í sínum fyrsta leik í endurkomu með Santos í heimalandi sínu, Brasilíu í kvöld en þá vann liðið erkiféndurna í Sao Paulo með tveimur mörkum gegn einu.
Framherjinn hafði komið inn á völlinn á 57. mínútu og sýndi strax sitt gamla góða form er hann náði virkilega vel saman með undrabarninu Neymar sem er 18 ára gamall. Nokkur skot eftir samvinnu þeirra fóru rétt framhjá.,
Á 85. mínútu hóf Robinho skyndisókn og gaf á Wesley úti á kanti. Hann fór framhjá öllum varnarmönnum og endaði svo sjálfur fyrir framan markið.
Wesley sendi svo fyrir markið, beint á Robinho sem stökk upp, tók boltann á hælinn og setti boltann framhjá markverðinum.
Robinho sneri til Brasilíu á láni frá Manchester City í síðasta mánuði, í von um að tryggja sér sæti í landsliðshópi Brasilíu á Heimsmeistaramótinu.


