Nokkrir leikir fóru fram í spænsku úrvalsdeildinni í dag. Real Zaragoza vann mikilvægan sigur í fallbaráttunni en liðið lagði Sevilla 2-1.
Alvaro Negredo, framherji Sevilla, vill væntanlega gleyma þessum leik sem fyrst en hann skoraði sjálfsmark sem reyndist sigurmark leiksins og til að bæta gráu ofan á svart þá fékk hann að líta rauða spjaldið fyrir ljótt brot í síðari hálfleik.
Mallorca skaust upp fyrir Sevilla í fjórða sætið með 1-0 sigri á Villareal og Racing Santander og Atletico Madrid gerðu einnig 1-1 jafntefli í kvöldleiknum svo eitthvað sé nefnt.
Málaga 0 - 0 Deportivo La Coruña
Athletic Bilbao 3 - 2 Deportivo Xerez
1-0 Iker Muniain ('2)
1-1 Vicente Moreno ('10)
1-2 Mario Bermejo ('41)
2-2 F. Llorente ('64)
3-2 F. Llorente ('86)
Mallorca 1 - 0 Villarreal
1-0 J. Nunes ('81)
Osasuna 1 - 0 Tenerife
1-0 Carlos Aranda ('48)
Real Zaragoza 2 - 1 Sevilla
1-0 M. Contini ('31)
1-1 F. Kanouté ('34)
2-1 Álvaro Negredo ('42, sjálfsmark)
Almería 3 - 1 Sporting Gijón
0-1 Diego Castro ('13, víti)
1-1 A. Crusat ('15)
2-1 Domingo Cisma ('43)
3-1 Guilherme ('81)
Racing Santander 1 - 1 Atlético Madrid
0-1 D. Forlán ('24)
1-1 Gonzalo Colsa ('36)




