Heimild: SydSvenskan
Landsliðskonan Dóra Stefánsdóttir lék um helgina sinn fyrsta fótboltaleik síðan í september er hún lék í 6-3 sigri LdB Malmö á Jitex í æfingaleik í Svíþjóð.
Dóra hefur glímt mikið við meiðsli og þurfti að fara í aðgerð vegna þeirra. Þess vegna missti hún af síðustu landsliðsverkefnum Íslands á árinu.
Hún er nú klár í slaginn að nýju og spilaði fyrri hálfleikinn sem miðvörður og þótti standa sig mjög vel.
Landsliðsfyrirliðinn Caroline Seger sem leikur í Bandaríkjunum hefur æft með LdB Malmö upp á síðkastið meðan frí er í Bandaríkjunum og lék þennan leik með liðinu.
Þóra Helgadóttir markvörður Íslands sat allan leikinn á varamannabekknum.
Endurkoma Dóru í boltann að nýju gefur henni væntanlega möguleika á að verða valin í landsliðshóp Íslands sem tilkynntur verður í kringum næstu mánaðarmót.



