Þróttur 0-2 Fylkir:
0-1 Kristrún Kristinsdóttir ('44)
0-2 Íris Dóra Snorradóttir('89)
Fylkir vann 0-2 sigur á Þrótti í Reykjavíkurmóti kvenna í kvöld og þar með er ljóst að Fylkir leikur hreinan úrslitaleik um sigur í mótinu gegn Val um næstu helgi.

Kristrún Kristinsdóttir kom Fylki yfir undir lok fyrri hálfleiks og gaf þeim mikilvægt forskot.
Undir lok leiksins bætti varamaðurinn Íris Dóra Snorradóttir öðru marki við.
Fylkir og Valur eru því efst í riðlinum með níu stig en Valur hefur betra markahlutfall. Liðin mætast á laugardaginn klukkan 17:00 í Egilshöll en það verður hreinn úrslitaleikur um sigur í mótinu.
Veistu úrslit úr æfingaleikjum?
Ef þú hefur upplýsingar um úrslit æfingaleikja og markaskorara endilega sendu okkur þá tölvupóst á [email protected] eða settu úrslitin á Twitter og merktu #fotboltinet