Leiknir F. 10 - 0 Huginn
Leiknir Fáksrúðsfirði burstaði Huginn 10-0 í gær í síðasta leiknum í riðlakeppni Síldarvinnslumótsins.
Bæði lið áttu möguleika á að ná fjórða sæti riðilsins fyrir þennan leik en Leiknir fór með öruggan sigur af hólmi.
Leiknir mætir því Hetti á Fellavelli klukkan 19:00 á föstudag í undanúrslitum mótsins en á sama tíma mætast Fjarðabyggð og Sindri í Fjarðabyggðarhöllinni í hinum undanúrslitaleiknum.



