Bjarni Jakob Gunnarsson og Garðar Guðnason hafa skrifað undir nýjan samning við Gróttu.
,,Bjarni Jakob hefur verið einn af lykilleikmönnum Gróttu og áframhaldandi samningur við hann mun styrkja liðið fyrir næstu leiktíð í 1. deildinni," segir í yfirlýsingu frá Gróttu.
,,Garðar er uppalinn leikmaður hjá Gróttu og er mjög mikilvægur fyrir liðið og stuðningsmenn Gróttu. Garðar hefur leikið stórt hlutverk í frábærum árangri meistarflokks Gróttu undanfarin ár. Áframhaldandi samningur við Garðar er mikilvægur liður í áætlun Gróttu að styrkja liðið fyrir næstu leiktíð í 1. deildinni," segir einnig í yfirlýsingunni.
Bjarni Jakob byrjaði að æfa knattspyrnu með Gróttu þegar hann var 4 ára og spilaði með yngri flokkum félagsins. Bjarni Jakob fór síðan yfir í KR og æfði og spilaði með meistaraflokki þeirra.
Bjarni Jakob spilaði einnig í meistaraflokki Fjölnis og síðan lá leiðin aftur á heimaslóðir í Gróttu árið 2005 þegar Grótta spilaði í 3.deildinni.
Garðar byrjaði að spila knattspyrnu með 5. flokki Gróttu 11 ára gamall. Hann spilaði sinn fyrsta meistaraflokksleik fyrir Gróttu árið 2002.
Garðar var valinn leikmaður ársins hjá knattspyrnudeild Gróttu árið 2005 og hefur í tvígang verið tilnefndur til Íþróttamanns Seltjarnarnes. Garðar hefur spilað yfir 100 leiki fyrir meistaraflokk Gróttu.

