Real Madrid blandar sér í baráttuna um Fernandes - Brighton hafnaði öðru tilboði í Van Hecke
   mán 08. febrúar 2010 10:21
Magnús Már Einarsson
Heimild: Sky 
Gary Cahill ekki meira með Bolton á tímabilinu
Varnarmaðurinn sterki Gary Cahill mun ekki leika meira með Bolton á þessari leiktíð.

Cahill var ekki með Bolton gegn Fulham um helgina og nú hefur félagið greint frá því að hann sé með blóðtappa í hendi og verði því ekki meira með í vetur.

Meiðslin eru ekki bara áfall fyrir Bolton heldur einnig fyrir Cahill persónulega því að hann hefur verið orðaður við stöðu í enska landsliðinu.

Cahill á ekki landsleik að baki en orðrómur hefur verið um að Fabio Capello landsliðsþjálfari myndi velja hann í leikmannahópinn fyrir HM.

Nú er hins vegar ljóst að ekkert verður að því þar sem að Cahill verður frá keppni næstu mánuðina.
Slapp
banner