Real Madrid blandar sér í baráttuna um Fernandes - Brighton hafnaði öðru tilboði í Van Hecke
   mán 08. febrúar 2010 13:00
Magnús Már Einarsson
Íslenski netrúnturinn: Myndbönd úr Rvk móti og fleira
Pesic mætir aftur á Skagann í vikunni.
Pesic mætir aftur á Skagann í vikunni.
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Þá er komið að ,,Íslenska netrúntinum." Þar rennir Fótbolti.net yfir síður íslensku félaganna, stuðningsmannasíður og aðrar síður sem tengjast fótbolta og skoðar athyglisvert efni. Um er að ræða nýjan fastan lið á Fótbolta.net og lesendur mega endilega senda ábendingar um efni á [email protected].

Igor Pesic kemur á Skagann í vikunni:
Igor Pesic er kominn með dvalarleyfi á Íslandi og mun koma á Akranes í vikunni til að hefja æfingar með ÍA. Pesic lék með ÍA undir lok síðasta tímabils en þessi knái miðjumaður var einnig hjá liðinu árið 2005 og 2006.
Sjá fréttina í heild: Igor Pesic kominn með dvalarleyfi og er væntanlegur á Skagann

Svipmyndir úr leik Fjölnis og Leiknis:
Á heimasíðu Fjölnis er hægt að skoða myndbandsbrot úr leik liðsins gegn Leikni í Reykjavíkurmótinu á dögunum en leikurinn fór 2-2 þar sem að Fjölnismenn jöfnuðu undir blálokin.
Sjá fréttina í heild: Leiknir-Fjölnir, brot af því besta

Fleiri myndbönd úr Reykjavíkurmótinu:
Sporttv.is hefur sýnt frá leikjum í Reykjavíkurmótinu að undanförnu. Á Sporttv.is er hægt að skoða allan leik Fjölnis og Leiknis sem og allan leik Fylkis og Fram sem fór 3-3.
Sjá fréttina í heild: Myndbönd úr Reykjavíkurmótinu

ÍBV fær enskan þjálfara:
ÍBV auglýsti á dögunum eftir þjálfurum fyrir yngri flokka í fótbolta þar sem að erfiðlega hefur gengið að manna flokkana í þjálfun. Eyjamenn leituðu erlendis og hafa núna fengið Michael White, 41 árs þjálfara frá Englandi til að taka að sér þjálfun í 3,6 og 7.flokki drengja og 4.flokk kvenna. Michael hefur áður þjálfað hjá Newcastle sem og á Möltu og í Bandaríkjunum.
Sjá fréttina í heild: ÍBV með liðsstyrk í þjálfuninni
Slapp