Real Madrid blandar sér í baráttuna um Fernandes - Brighton hafnaði öðru tilboði í Van Hecke
   mán 08. febrúar 2010 11:36
Magnús Már Einarsson
Kastað upp á hvort Fram eða Fylkir vinnur riðilinn
Mynd: Fótbolti.net - Einar Ásgeirsson
Óvenjuleg staða er kominn upp í B-riðlinum á Reykjavíkurmóti karla en Fylkir og Fram eru þar hnífjöfn í tveimur efstu sætunum þegar að öllum leikjum er lokið.

Bæði lið eru með sjö stig og markatöluna 5-3 og það sem meira er þá gerðu þau 3-3 jafntefli í innbyrðis viðureign sinni.

Því mun þurfa að kasta upp á það hvort liðið vinnur riðilinn og verður það gert í hádeginu í dag en þetta staðfesti Steinn Halldórsson formaður KRR við Fótbolta.net í dag.

Óljóst er hvaða mótherja Fram og Fylkir geta fengið undanúrslitunum en í A-riðli er KR komið áfram og Víkingur R. og Þróttur eiga bæði möguleika á að bætast í hópinn.
Slapp
banner