Real Madrid blandar sér í baráttuna um Fernandes - Brighton hafnaði öðru tilboði í Van Hecke
banner
   mán 08. febrúar 2010 12:15
Magnús Már Einarsson
Leikdagar ákveðnir eftir mánuð - Ísland vill byrja á Portúgal
Dregið var í riðla í undankeppni EM í gær en leikdagar Íslands í keppninni verða ákveðnir áttunda mars næstkomandi.

Þá munu forráðamenn Portúgals, Danmerkur, Noregs, Kýpur og Íslands hittast á fundi í Kaupmannahöfn og raða niður leikjunum.

Undankeppnin hefst í september næstkomandi og Carlos Queiroz, landsliðsþjálfari Portúgal, hefur sagt að hann vilji mæta Íslendingum í fyrsta leik.

KSÍ hefur einnig áhuga á að láta það ganga eftir enda þarf Ísland að leika heimaleiki sína á meðan að veðurfar er hagstætt hér á landi.

,,Við getum ekki spilað heimaleiki í mars en annað er óklárt. Ég myndi samt gjarnan vilja byrja á Portúgal í haust," sagði Þórir Hákonarson framkvæmdastjóri KSÍ við Fótbolta.net í dag.
Slapp
banner